Fréttasafn
|29.12.2025
Með varkárni að vopni
Um leið og við óskum öllum gleðilegs nýs árs og þökkum fyrir árið sem er að líða hvetjum við til varkárni í meðhöndlun flugelda um áramótin.

Hvetjum alla til að rifja aðeins upp áður en áramótin ganga í garð:
Renna yfir flugeldaleiðbeiningarnar
Hafa í huga að börnin þekkja ekki hættur flugelda og blysa
Virða aldursmörk flugeldavara
Passa upp á að allir noti öryggisgleraugu
Nota ullar- eða skinnhanska
Virða fjarlægðarmörk frá skotstað, a.m.k. 20 metra
Nota stöðuga undirstöðu fyrir flugelda, standblys og skotkökur
Tendra í með útréttri hendi og víkja strax frá
Muna að áfengi og flugeldar eiga ekki samleið
Koma sprungnum flugeldavörum á sorphirðustöð
Gæta þess að ungmenni fikti ekki með flugeldavörur sama hvort þær eru sprungnar eða ekki