Fréttasafn

|

20.05.2025

Er eftir­vagninn tilbúinn fyrir sumarið?

Nú þegar tími orlofa og ferða­laga er hafinn þá er ekki úr vegi að fara yfir eftir­vagn­inn.

Það er ekki nóg að þrífa og lofta heldur þarf að tryggja að allt sé í lagi til að auka líkur á að ferða­lagið sé án óþarfa veseni sem enginn nennir að fást við þegar ferða­lagið er hafið.

  • Er kominn tími á skoðun?

  • Er tengi­bún­aður eftir­vagns lipur eða stendur hann á sér?

  • Er örygg­isvír á tengi­búnaði á sínum stað?

  • Eru dekk og loft­þrýst­ingur þeirra í lagi?

  • Byrgir eftir­vagninn sýn?

  • Er reyk­skynj­arinn virkur?

  • Er eldvarna­teppið á sínum stað?

  • Þarf að láta yfir­fara slökkvi­tækið?

  • Er gasskynj­arinn virkur?

  • Eru merki um að sprungur á gasleiðslum eða hreyf­ingu á samskeytum?

  • Eru fest­ingar gaskút traustar?

  • Er búið að hreinsa alla fitu undir grind grills?

Þegar ferða­lagið er byrjað má ekki gleyma að fylgjast með vind­styrk þeirra leiða sem á að aka. Ef hviður fara yfir 15 til 25 m/s þá er ástæða til að endur­skoða ferðaplanið.

Fréttasafn
Deila frétt