Fréttasafn

|

29.05.2024

VÍS hefur gefið yfir 1.100 fjöl­skyldum barna­bíl­spegla í sæng­ur­gjöf

VÍS hefur nú í um tvö ár gefið yfir 1.100 fjöl­skyldum barna­bíl­spegla í sæng­ur­gjöf. Hugmyndin kemur upphaf­lega frá viðskipta­vinum félags­ins.

Spegl­arnir eru í boði fyrir viðskipta­vini okkar í demants-, gull- og silf­ur­þrepi sem eru nýbúin að eignast börn. Gjöfin birtist í VÍS appinu mánuði eftir að barn fæðist en einnig er sendur tölvu­póstur til áminn­ingar.

„Við viljum auðvelda nýbök­uðum foreldrum að hafa augun á því sem skiptir mestu máli í þeirra lífi. Það er að mörgu að huga á fyrstu dögunum þegar barn bætist í fjöl­skylduna og barna­bíl­speglar eru ekki endi­lega efst á list­anum hjá mörgum. Þess vegna ákváðum við að bjóða nýbök­uðum foreldrum í viðskiptum hjá okkur barna­bíl­spegla. Það er auðvitað mjög ánægju­legt að geta aukið öryggi skemmti­leg­ustu ferða­fé­lagana í umferð­inni með þessum hætti en þessi hugmynd kemur upphaf­lega frá viðskipta­vinum okkar,“ segir Ingi­björg Ásdís, fram­kvæmda­stjóri sölu og þjón­ustu hjá VÍS.

Höfum augun á því mikil­væg­asta í lífinu

„Mælt er með því að barn sé í bakvís­andi barna­bíl­stól fram til þriggja til fjög­urra ára aldurs. Barna­bíl­spegill auðveldar foreldrum að hafa augun á barninu í slíkum stól og eiga í samskiptum það. Speg­illinn minnkar einnig líkur á truflun í akstri þar sem ekki þarf að snúa sér við til að athuga með barnið eða eiga í samskiptum við það,” segir Sigrún A. Þorsteins­dóttir, sérfræð­ingur í forvörnum hjá VÍS.

Tilboð og gjafir í VÍS appinu

Barna­bíl­spegl­arnir eru aðgengi­legir nýbök­uðum foreldrum í VÍS appinu ásamt fjölda annarra örygg­is­gjafa sem viðskipta­vini geta óskað eftir. Þar má einnig finna tilboð og afslætti á vörum og þjón­ustu samstarfs­aðila VÍS.

„Við viljum sýna á einum stað allt það sem við höfum upp á að bjóða svo viðskipta­vinir geti með auðveldum hætti fundið örygg­is­vörur sem henta hverju sinni eða nýtt þau tilboð sem við höfum aflað fyrir þá. Hvort sem það eru endur­skins­merki, framrúðuplástrar eða góð tilboð á dekkjum, barna­bíl­stólum eða snjallör­yggis­kerfum, þá er það að finna Í VÍS appinu“ segir Ingi­björg enn fremur.

Fréttasafn
Deila frétt