Fréttasafn

|

30.12.2024

Vátrygg­inga­félag Íslands hf. verður VÍS trygg­ingar hf.

Þann 1. janúar 2025 fær Vátrygg­inga­félag Íslands hf. nýtt nafn og nýja kenni­tölu.

Nýtt nafn er VÍS trygg­ingar hf. og ný kennitala er 670112-0470.

Þessi breyting mun ekki hafa nein áhrif á einstak­linga eða fyrir­tæki sem eru í viðskiptum við VÍS.

Ástæða breyt­ing­anna er að árið 2023 keypti Vátrygg­inga­félag Íslands hf. allt hlutafé í Fossum fjár­fest­ing­ar­banka og til varð samstæða sem byggir á öflugum innviðum á sviði trygg­inga, fjár­fest­ing­ar­banka­starf­semi, sjóða- og eign­a­stýr­ingar og annarrar sérhæfðrar fjár­mála­þjón­ustu. Samstæðan fékk nafnið Skagi og er VÍS trygg­ingar hf. dótt­ur­félag Skaga.

Við höfum tekið saman svör við spurn­ingum sem kunna að vakna.

Fréttasafn
Deila frétt