Fréttasafn

|

24.05.2024

Rúðan með stjörnu­stæla

Það er ansi hvim­leitt að fá stein í rúðuna sem skilur eftir sig verks­um­merki.

Ef skemmdin er ekki stærri en gosflöskutappi og er ekki í sjón­línu ökumanns þá er yfir­leitt hægt að gera við hana. Það kostar þig ekkert og er umhverf­i­s­vænna en að skipta. Ef þarf að skipta þá þarf þú að greiða 20% af kostn­aði.

Til að koma í veg fyrir að vatn og skítur fari í sárið eftir steininn er mikil­vægt að setja límmiða yfir. Ef þú átt ekki límmiða þá getur þú pantað hann í VÍS appinu en það er alltaf gott að vera með einn í hanska­hólf­inu.

Svo er bara að aka rólega út í sumarið. Virða hámarks­hraða, draga úr hraða þegar bíl er mætt á malar­vegi og passa bilið yfir í næsta bíl.

Fréttasafn
Deila frétt