Fréttasafn

|

28.11.2024

Öruggir aðventukr­ansar

Mikil­vægt er að útbúa aðventukr­ansa og aðrar jóla­skreyt­ingar með lifandi kertum á eins öruggan hátt og kostur er. Þannig að sem minnst hætta er á að kvikni í ef t.d. gleymist að slökkva.

Hvað er gott að hafa í huga?

  • Hafa tryggar undir­stöður undir kertum.

  • Láta skraut og greinar ekki liggja upp að kertum.

  • Hafa a.m.k. 10 sm á milli kerta.

  • Nota kerti þar sem kveikju­þráður nær ekki alla leið niður.

  • Velja kerti sem eru ekki húðuð.

  • Stað­setja skreyt­ingu ekki þar sem litlir krakkar eða dýr ná til og ekki í gegn­um­trekk.

  • Hafa kerta­kveik ekki lengri en 1 sm þegar kveikt er á kerti.

  • Geyma eldfæri á öruggum stað.

Þrátt fyrir að farið er eftir öllu ofan­greindu þá mælum við alltaf með ledkertum frekar en lifandi. Ekki spillir fyrir að mörg þeirra er hægt að tímastilla eða nota fjar­stýr­ingu til að tendra á þeim.

Í upphafi aðventu er mikil­vægt að fara yfir eldvarnir heim­il­is­ins. Ef þarf að kaupa eldvarna­teppi, reyk­skynjara eða slökkvi­tæki þá er um að gera að skoða afslætti hjá frábærum samstarfs­að­ilum okkar í VÍS appinu.

Fréttasafn
Deila frétt