Fréttasafn

|

28.08.2024

Nýr fram­kvæmda­stjóri trygg­inga og tjóna hjá VÍS

Reynir Bjarni Egilsson hefur verið ráðinn fram­kvæmda­stjóri trygg­inga og tjóna hjá VÍS.

Reynir Bjarni Egilsson, framkvæmdastjóri trygginga og tjóna.

Reynir hefur frá árinu 2004 stafað hjá Rapyd og forverum þess, Valitor og Visa Íslandi, nú síðast sem fram­kvæmda­stjóri korta­út­gáfu frá árinu 2021. Reynir hefur gegnt ýmsum störfum hjá fyrir­tækinu í þau 20 ár sem hann hefur starfað þar, m.a. verið sérfræð­ingur á fjár­mála­sviði, sinnt verk­efna­stjórn og viðskipta­þróun í erlendri korta­út­gáfu, og verið deild­ar­stjóri í vöru­stýr­ingu og vöru­þróun.

Reynir er með meist­ara­gráðu í fjár­málum fyrir­tækja frá Háskól­anum í Reykjavík og B.Sc í viðskipta­fræði frá Háskóla Íslands. Reynir tekur við starfinu af Sindra Sigur­jóns­syni sem sagði starfi sínu lausu fyrr í sumar.

Reynir Bjarni Egils­son, nýr fram­kvæmda­stjóri trygg­inga og tjóna:

„Ég hlakka til þess að hefja störf hjá VÍS og er þakk­látur fyrir tæki­færið. VÍS hefur verið í mikilli sókn undan­farið og það verður mjög áhuga­vert að taka þátt í þeirri metn­að­ar­fullu vegferð sem félagið er á. Ég er spenntur fyrir því að leggja mitt af mörkum til að efla enn frekar þjón­ustu og starf­semi félagsins í takt við stefnu þess og fram­tíð­ar­sýn.“

Guðný Helga Herberts­dóttir, forstjóri VÍS:

„Ég fagna því að fá jafn öflugan og reyndan stjórn­anda og Reyni til liðs við fram­kvæmda­stjórn VÍS. Markmið sviðsins sem Reynir mun leiða er að þróa trygg­ingar þannig að viðskipta­vinir sem verða fyrir tjóni fái sem bestu þjón­ustu við úrlausn sinna mála. Ég treysti Reyni vel til að ná frábærum árangri í samvinnu við aðra stjórn­endur og kraft­mikinn hóp starfs­manna sviðs­ins. Ég hlakka til samstarfsins við hann.“

Fréttasafn
Deila frétt