Fréttasafn

|

03.06.2024

Leið­inda litir í veður­spám

Gular og appel­sínu­gular veður­við­var­anir verða meira og minna alla vikuna. Veður­við­var­an­irnar eru óvenju þaul­setnar fyrir þennan árstíma en í raun væri líka varað við veðrinu þó svo vetur væri.

Hvassri norð­anátt er spáð með ofan­komu og kulda og verður veðrið leið­in­legast á Norður- og Aust­ur­landi. Við hvetjum alla sem þurfa að keyra um landið á þessum tíma til að skoða færð og veður áður en lagt er af stað, aka að degi til meðan þjón­usta Vega­gerð­ar­innar er til staðar og virða lokanir á vegum.

Eins hvetjum við bændur til að huga að búfénaði sínum og taka það fé inn sem hægt er, garð­yrkju­bændur með útiræktun til að gera ráðstaf­anir og almenning til að ganga frá lausa­munum utan­dyra.

Fréttasafn
Deila frétt