Fréttasafn

|

28.11.2024

Iðgjald til Nátt­úru­ham­fara­trygg­inga Íslands hækkar frá 1. janúar 2025

Meðal þeirra gjalda sem innheimt eru samhliða bruna­trygg­inga­ið­gjöldum hjá almennu vátrygg­inga­fé­lög­unum (Sjóvá, TM, Verði og VÍS) er lögbundið iðgjald sem rennur til Nátt­úru­ham­fara­trygg­ingar Íslands (NTÍ).

NTÍ er opinber stofnun sem hefur það hlut­verk að vátryggja húseignir og bruna­tryggt lausafé, þ.m.t. innbú gegn tjóni af völdum jarð­skjálfta, eldgosa, skriðu­falla, snjóflóða og vatns­flóða. Iðgjaldið hefur í áratugi verið innheimt óháð áhættu, af eignum um allt land sem fast hlut­fall af bruna­bóta­mati húseigna og vátrygg­ing­ar­fjár­hæðum lausa­fjár.

Atburð­irnir sem átt hafa sér stað á Reykja­nesi á síðasta ári hafa haft veruleg áhrif á fjár­hags­lega getu NTÍ til þess að standa undir þeim vænta tjóns­kostnaði sem ætla má að geti orðið í fram­tíð­inni af völdum nátt­úru­ham­fara. Með hags­muni almenn­ings og fyrir­tækja að leið­ar­ljósi er mikil­vægt að tryggja að NTÍ geti staðið við laga­legar skuld­bind­ingar sínar þegar stór áföll dynja á Íslandi af völdum nátt­úru­ham­fara sem valda tjóni á vátryggðum húseignum og lausa­fjár­munum.

Af þeim sökum hefur Alþingi samþykkt breyt­ingu á lögum um Nátt­úru­ham­fara­trygg­ingu Íslands, sem felur í sér heimild stofn­un­ar­innar til þess að hækka tíma­bundið iðgjöld um 50%, en þó að hámarki til ársins 2035. Sú heimild verður nýtt og iðgjöld til NTÍ innheimt samhliða bruna­trygg­ingar­ið­gjöldum með 50% álagi, frá og með 1. janúar 2025.

Sem dæmi um áhrif þessara breyt­inga, mun iðgjald til NTÍ af 80 milljón króna eign hækka úr kr. 20.000 á ári í kr. 30.000 á ári og iðgjald af innbús­trygg­ingu á 20 milljón króna innbúi mun hækka úr kr. 5.000 í kr. 7.500 á ári.

Tilkynning frá NTÍ vegna hækk­unar iðgjalda.

Fréttasafn
Deila frétt