Fréttasafn

|

10.05.2024

Hjólum örugg inn í sumarið

Eitt af merkjum þess að sumarið nálgast er þegar hjól­urum fjölgar dag frá degi.

Heilbrigður og góður ferðamáti

Jákvæð breyting sem ánægju­legt er að sjá. Gott er að fara yfir öruggar hjól­reiðar til að stuðla að slysa­lausum ferð­um.  

Hjólið 

·        Tryggja að bremsur virki vel 

·        Athuga loft­þrýsting dekkja en ráðlagðan þrýsting má sjá á hlið þeirra 

·        Fara yfir keðju og tann­hjól og hreinsa 

·        Tékka á still­ingum gíra 

·        Nota lás sem er með hátt öryggi 

·        Læsa í gegnum stell hjóls og við jarð­fastan hlut 

Hjól­arinn 

·        Tryggja sýni­leika sinn 

·        Nota hjálm og passa að hann sé rétt stilltur þ.e. sitji beint ofan á höfði og höku­band ekki slakt 

·        Nota stefnu­merki t.d. þegar á að stoppa og beygja 

·        Draga úr hraða þegar farið er yfir götu og vera viss um að bílstjóri sé meðvit­aður 

·        Halda sig hægra megin á stígum og götu 

·        Taka fram úr vinstra megin 

·        Hafa heyrn­artól bara í öðru eyranu 

·        Sýna öðrum vegfar­endum tillit­semi 

Hvetjum viðskipta­vini okkar til að nýta sér afslætti á hjálmum og lásum hjá samstarfs­að­ilum okkar í VÍS appinu.

Fréttasafn
Deila frétt