Fréttasafn

|

12.03.2024

Forvarna­verð­launa­hafar 2024

Forvarna­verð­laun VÍS voru afhent í fjór­tánda skipti á dögunum en verð­launin hlýtur það fyrir­tæki í viðskiptum við VÍS sem þykir skara fram úr í örygg­is­málum og er öðrum fyrir­tækjum góð fyrir­mynd.

Forvarnaráðstefna Silfurberg

Verð­launað er fyrir sterka örygg­is­menn­ingu þar sem unnið er mark­visst í að efla öryggis­vitund og örygg­is­hegðun. Fyrir­komulag Forvarna­verð­laun­anna tók þeim breyt­ingum í ár að tilnefnd eru fyrir­tæki í flokki stærri og minni fyrir­tækja og voru 23 fyrir­tæki tilnefnd af starfs­mönnum VÍS í ár.

Fyrir­tæki sem er tilnefnt er boðið að sækja um og í því ferli þurfa þau að fylla út ákveðið mats­blað en þetta „stöðumat“ rammar stöðu fyrir­tæk­isins inn eftir fjölda stiga og segir til um hvar það er statt innan ramma vinnu­vernd­ar­lag­ann­a. ­For­varna­verð­launin eru fyrir­tækjum hvatning til að halda áfram á sömu braut og gera enn betur og eru þrjú fyrir­tæki í hvorum flokki tilnefndra sem komast áfram. Eitt félag í hvorum flokki hlýtur Forvarn­ar­verð­launin sjálf fyrir framúrsk­ar­andi árangur í örygg­is­málum og tvö félög í hvorum flokki hljóta hvatn­ing­ar­verð­laun fyrir góðan árangur í örygg­is­málum.

Í flokki minni fyrir­tækja fengu Faxa­flóa­hafnir Forvarna­verð­launin. Þar er örygg­is­menning í hávegum höfð, starfs­fólk meðvitað um mikil­vægi öryggis, slysa­tíðni lág og fræðsla stór þáttur í störfum allra. Þau hafa innleitt ECO online gagna­grunninn ásamt QR kóðum til að auka á öryggi í tengslum við meðferð hættu­legra efna. Eru með vefsjá sem sýnir alla staði við höfnina og stöðuna á örygg­is­málum og örygg­is­búnaði tengdum vinnu­að­stæðum. Eftirlit er gott, starfs­menn taka þátt í áhættumati, skráning atvika og ábend­inga er vel virk og auðvelt að bregðast við ef eitt­hvað má betur fara.

Hópferða­fyr­ir­tækið Snæland Grímsson og innviða­fyr­ir­tækið Tengir fengu viður­kenn­ingu í flokk­unum minni fyrir­tæki fyrir árangur í örygg­is­málum.

Hjá Snælandi Gríms­syni starfar samheldinn hópur þar sem örygg­is­menning er sterk og lítið hefur verið um slys í gegnum árin. Öll atvik eru tekin fyrir á stjórn­ar­fundum og er unnið úr þeim jafnóðum þar sem stjórn­endur bera ábyrgð á úrlausnum atvika. Mikil áhersla er lögð á öfluga flota­stjórnun, en hún er undir­staða örygg­is­stjórn­unar og forvarna. Nýtt húsnæði fyrir­tæk­isins hefur það markmið að sameina rekstr­arein­ingar, auka yfir­sýn, samþætta örygg­is­menn­ingu og koma örygg­is­málum inn í betri ramma. Nútímaleg þrif­að­staða er ásamt aðstöðu fyrir bílstjóra til að yfir­fara bílana. Hver bílstjóri ber ábyrgð á að yfir­fara örygg­is­þætti sinnar bifreiðar hverju sinni samkvæmt verk­ferlum fyrir­tæk­is­ins.  ­Sjálf­bærni er þeim hugleikin og leggur fyrir­tækið m.a. áherslu á að vera með nýjan bíla­flota í umferð til að tryggja öryggi og um leið draga úr kolefn­is­sporum. Snæland Grímsson uppfyllir Euro 6 stað­alinn hvað varðar útblástur.

Stjórn­endur Tengi eru meðvit­aðir um mikil­vægi þess að örygg­ismál séu alltaf á dagskrá. Hugs­un­ar­háttur stjórn­enda er þannig að það er ætlast til þess að fólk taki þann tíma sem þarf til verksins og geri hlutina vel og tryggi öryggi sitt og annarra. Allt er gert til að reyna að koma í veg fyrir tjón.  Tengir nýtir sér tæknina til að auka á öryggi m.a. vegg­skanna, sjón­tæki, GPS tækni og teikn­ingar í öllum fram­kvæmdum. Þar sem vinna starfs­fólks fer fram fyrir utan sjálfan vinnu­staðinn eru stað­setn­inga­bún­aður í tækjum, bifreiðum og dýrari smátækjum til að hægt sé að sjá stað­setn­ingu þeirra ef eitt­hvað kemur upp á. Með mark­vissri vinnu síðustu ár þar sem áherslan hefur verið á forvarnir og öryggi en ekki síst skýrari samskipti hefur tekist að koma á breyttum hugs­un­ar­hætt­i.   

 Í flokki stærri fyrir­tækja hlaut Skinn­ey-Þinganes Forvarna­verð­launin. Hjá þeim hafa allir rödd í örygg­is­veg­ferð þeirra og engin vinnu­slys hafa orðið þar í tólf mánuði. Þar er fyrsta flokks vinnu­að­staða bæði í land­vinnslu og á sjó og mikil áhersla lögð á öryggi og heilsu­vernd starfs­fólks. Forvarnir byggjast á áhættumati starfa sem er fram­kvæmt með reglu­bundnum hætti, atvika­skrán­ingar færðar í ATVIK kerfið og merk­ingar og ferlar í kringum tæki eru mjög skýrir. Eigið eldvarn­ar­eft­irlit er virkt og unnið er við það að koma gátlistum fyrir það í snjallsíma­for­rit. Fyrir­tækið nýtir sér staf­rænar lausnir við fræðslu­starf og er þátt­tak­andi í Öldu Öryggi sem heldur utan um öryggi á sjó með sjálf­bærni í fyrir­rúmi.

Norður­orka og sveit­ar­fé­lagið Múla­þing fengu viður­kenn­ingu í flokk­unum stærri fyrir­tæki fyrir árangur í örygg­is­málum.

Hjá Norður­orku hefur náðst frábær árangur í aukinni vitund­ar­vakn­ingu þegar kemur að forvörnum sem hefur skilað sér í færri slysum og tjónum ásamt góðri örygg­is­menn­ingu. Örygg­ismál eru fastur liður á starfs­manna­fundum og Norður­orka notar ATVIK atvika­skrán­ing­ar­kerfi VÍS mark­visst tengt forvörnum og inn í áhættumatið sem allt starfs­fólk tekur þátt í. Merk­ingar eru á öllum vinnusvæðum, áhersla er lögð á lýðheilsu og aðstöðu starfs­fólks og fræðslumál skipa stóran sess hjá fyrir­tæk­inu. Fyrir­tækið er meðvitað um að vinnu við að bæta örygg­ismál lýkur aldrei og því eru alltaf einhver tæki­færi til að gera enn betur. 

Hjá Múla­þingi liggur áherslan í sjálf­bærni í þekk­ingaröflun, þekk­ing­ar­sköpun og þekk­ing­ar­miðlun og áhersla er á að draga úr sóun. Helsta áskor­unin eftir samein­ingu hefur legið í miðlun upplýs­inga og fræðslu ásamt því að tryggja að hún nái til allra, en langt er á milli þétt­býla. Með áherslu á staf­ræna tækni hefur náðst mikill árangur og er innri fræðsla sterk, nær yfir stórt svæði og til ólíks starfs­fólks í ólíkum atvinnu­greinum. Eftir að Múla­þing tók upp ATVIK atvika­skrán­ing­ar­kerfi VÍS, sem hluta af örygg­is­stjórnun sveit­ar­fé­lags­ins, hafa mörg umbóta­verk­efni orðið til. Til að mynda hefur verið farið í almennar hálku­varnir og lagfær­ingar á húsnæði eftir ábend­ingar þar. Skrifleg forvarnar- og viðbragðs­áætlun vegna streitu, kuln­unar og vanlíðan er til staðar og hafin er innleiðing á heilsu­efl­andi vinnu­stað.

Fréttasafn
Deila frétt