Fréttasafn

|

01.03.2024

Forvarna­ráð­stefna og Forvarna­verð­laun

Forvarna­ráð­stefna VÍS var haldin í 14 sinn í Hörp­unni á hlaupárs­degi. Frábær mæting var á ráðstefnuna en um 270 mættu.

Á dagskrá voru sex erindi ásamt sjö stuttum mynd­böndum með viðtölum við stjórn­endur ýmissa fyrir­tækja, stofn­anna og samtaka.

Rúsínan í pylsu­end­anum voru svo Forvarna­verð­laun VÍS sem voru með breyttu sniði í ár þar sem búið er að skipta þeim upp í tvo flokka það er flokk minni og stærri fyrir­tækja.

Í flokki minni fyrir­tækja fékk Faxa­flóa­hafnir Forvarna­verð­launin en Snæland og Tengir voru einnig tilnefnd. 

Í flokknum stærri fyrir­tæki fékk Skinney Þinganes Forvarna­verð­launin en sveit­ar­fé­lagið Múla­þing og Norður­orka voru einnig tilnefnd.

 

Fréttasafn
Deila frétt