Fréttasafn

|

22.03.2024

Breyt­ingar á skipu­riti og fram­kvæmda­stjórn VÍS trygg­inga

VÍS trygg­ingar hafa gert breyt­ingar á skipu­riti félagsins og ráðið tvo reynslu­mikla stjórn­endur í störf fram­kvæmda­stjóra.

Jón Árni Traustason tekur við starfi fram­kvæmda­stjóra fjár­mála og grein­inga. Jón Árni var forstöðu­maður viðskipta­greindar hjá VÍS og tók sæti sem slíkur í fram­kvæmda­stjórn í maí síðast­liðnum. Hann hóf störf hjá félaginu árið 2018 en áður starfaði Jón Árni meðal annars hjá Skelj­ungi sem forstöðu­maður upplýs­inga­tækni og viðskipta­greindar. Jón Árni er með meist­ara­gráðu (M.Sc) í fjár­mála­stærð­fræði frá háskól­anum í Uppsala í Svíþjóð og BS-gráðu í stærð­fræði frá Háskóla Íslands.

Ingólfur Þorsteinsson hefur verið ráðinn fram­kvæmda­stjóri staf­rænna lausna. Ingólfur var áður forstöðu­maður upplýs­inga­tækni­mála og staf­rænnar þróunar hjá VÍS en hann hóf störf hjá félaginu árið 2018. Áður starfaði hann meðal annars hjá Advania sem forstöðu­maður hugbún­að­ar­þró­unar og upplýs­inga­stjórn­unar. Ingólfur er með MBA-gráðu frá Háskól­anum í Reykjavík og BS-gráðu í tölv­un­ar­fræði frá sama skóla.

Á mynd­inni frá vinstri eru Ingólfur Þorsteinsson og Jón Árni Trausta­son.

Auk þeirra Ingólfs og Jóns Árna sitja nú í fram­kvæmda­stjórn VÍS trygg­inga Guðný Helga Herberts­dóttir, forstjóri, Anna Rós Ívars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri mannauðs og menn­ingar, Ingi­björg Ásdís Ragn­ars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri sölu- og þjón­ustu og Sindri Sigur­jóns­son, fram­kvæmda­stjóri trygg­inga og tjóna.

Nýtt skipurit tekur strax gildi.

Guðný Helga Herberts­dóttir, forstjóri VÍS trygg­inga:

„Ingólfur og Jón Árni hafa verið í ábyrgð­ar­hlut­verkum í uppbygg­ingu innviða félagsins á undan­förnum árum og því þekki ég styrk­leika þeirra vel. Þeir eru báðir reynslu­miklir stjórn­endur sem fá nú ný hlut­verk og áskor­anir. Ég tel að með þessu skipu­lagi verðum við enn betur í stakk búin til að ná mark­miðum okkar um framúrsk­ar­andi þjón­ustu, skil­virkni í rekstri og arðsemi.“

Fréttasafn
Deila frétt