Fréttasafn

|

03.04.2024

Bergrún nýr yfir­lög­fræð­ingur VÍS trygg­inga

Bergrún Elín Bene­dikts­dóttir hefur verið ráðin sem yfir­lög­fræð­ingur VÍS trygg­inga.

Bergrún Elín var áður meðeig­andi Fulltingi, lögfræði­stofu sem sérhæfir sig í slysa- og skaða­bóta­málum. Stofan sinnir einnig málum er varða vátrygg­inga­rétt og vinnu­rétt, en Bergrún hóf þar störf árið 2008. Að auki, hefur hún sinnt kennslu í skaða­bóta­rétti við Háskólann á Bifröst.

Bergrún er með meist­ara­gráðu í viðskipta­fræði (MBM) og meist­ara­próf í lögfræði (cand. Jur).

Hún hefur nú þegar hafið störf hjá VÍS trygg­ingum.

Bergrún Elín Bene­dikts­dóttir, yfir­lög­fræð­ingur VÍS trygg­inga:

„Ég er full tilhlökk­unar að takast á við ný og spenn­andi verk­efni hjá VÍS trygg­ingum. Félagið er á spenn­andi vegferð og með metn­að­ar­full markmið á mark­aði. Ég hlakka til að láta til mín taka á nýjum vett­vangi.“

Guðný Helga Herberts­dóttir, forstjóri VÍS trygg­inga:

„Ég fagna komu Bergrúnar í frábæran hóp stjórn­enda hjá félag­inu. Ég er þess full­viss að reynsla hennar og menntun muni styrkja félagið til fram­tíð­ar.“

Fréttasafn
Deila frétt