Fréttasafn

|

08.02.2024

Áríð­andi skilaboð til íbúa á Suður­nesjum

Neyð­arstigi hefur verið lýst yfir á Suður­nesjum vegna rofs á afhend­ingu á heitu vatni þar.

Á vef Almanna­varna eru eftir­far­andi skilaboð sem mikil­vægt er að komist til allra íbúa á Suður­nesjum:

  • Heita­vatns­lögnin er rofin sem veldur heita­vatns­leysi á Suður­nesjum. Nú er mikil­vægt að íbúar og fyrir­tæki á Suður­nesjum spari allt rafmagn og heitt vatn.

  • Miðl­un­ar­tankar geyma heitt vatn á svæðinu og nú þegar leiðslan er farin er það eina vatnið sem er eftir á svæð­inu. Almanna­varnir ítreka því mikil­vægi þess að íbúar og fyrir­tæki spari vatnið. Í mark­vissum sparnaði endast miðl­un­ar­tankar vænt­an­lega í 6 til 12 klukku­stundir. Miðað við hefð­bundna daglega notkun endast tank­arnir í 3 til 6 klukku­stundir.

  • Íbúar geta notað rafmagn­sofn en Almanna­varnir ítreka að hver eign má aðeins notast við einn rafmagn­sofn. Rafkerfið þolir ekki meiri notkun. Ef öll setja ofna í gang í einu getur kerfið slegið út. Því er mikil­vægt að íbúar fylgi fyrir­mælum og noti aðeins einn rafmagn­sofn til kynd­ingar.

  • Spurt og svarað vegna heita­vatns­leysis.

Mikið hefur selst af gaskútum á svæð­inu. Ef valið er að nota gashitun til upphit­unar þarf að muna þá eldhættu sem getur skapast af henni og tryggja verður góða loftræst­ingu og alls ekki fara að sofa út frá henni.

Fréttasafn
Deila frétt