Fréttasafn

|

07.07.2023

VÍS og Netpartar stytta biðtíma eftir vara­hlutum með umhverf­i­s­vænu samstarfi

VÍS hefur hafið samstarf við Netparta, sem er umhverf­i­svæn endur­vinnsla bifreiða, til þess auka framboð vara­hluta í bíla­við­gerðum.

Mikil bið hefur verið eftir nýjum vara­hlutum undan­farna mánuði, sem er ekki einungis vandamál hér á landi heldur víða um heim. Með þessu vill VÍS stytta biðtíma fyrir viðskipta­vini sína eftir vara­hlutum, en einnig leggja sitt af mörkum í þágu hringrás­ar­hag­kerf­isins og minnka kolefn­is­sporið í bíla­við­gerðum. Eingöngu verða notaðir bíla­vara­hlutir frá Netpörtum, sem eru jafn­ga­mlir eða yngri en viðgerð­ar­bíll­inn, og hafa hlotið viðeig­andi meðhöndlun samkvæmt ISO umhverfis- og gæða­vottun.

Samstarf VÍS og Netparta felst í kaupum á nýlegum tjóna­bílum til niðurrifs til þess að auka framboð af notuðum vara­hlutum. Netpartar hafa þegar fengið 45 bíla í niðurrif sem gefa af sér um 10.000 vara­hluti. Notaðir vara­hlutir hafa verið nýttir við bíla­við­gerðir til margra ára hér á landi, en undan­farin 30 ár hefur VÍS selt um 1.000 tjónaða bíla á ári þar sem bílarnir eru ýmist lagfærðir eða bútaðir í sundur til þess að gefa vara­hlutum fram­halds­líf.

Með þessu samstarfi er ætlunin að fara að dæmi trygg­inga­fé­laga á Norð­ur­lönd­unum sem hafa einblínt á að auka og mæla notkun notaðra vara­hluta í þágu hringrás­ar­hag­kerf­isins og minna kolefn­is­spors og ekki síst styttri biðtíma eftir hlutum. Áætluð notkun notaðra vara­hluta hér á landi í bíla­við­gerðum er um 2% á meðan hlut­fallið er um 15% í Svíþjóð. Eitt af sjálf­bærni­mark­miðum VÍS er að auka notkun hlut­fall notaðra vara­hluta í bíla­við­gerðum.

Spurn­ingar og svör um samstarf VÍS og Netparta

Ingi­björg Ásdís Ragn­ars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri sölu og þjón­ustu hjá VÍS:

„Við erum svaka­lega stolt af þessu samstarfi, en í Svíþjóð til að mynda hefur samstarf trygg­inga­fé­laga og parta­sala lengi verið þekkt. Framboð vara­hluta hér á landi hefur verið ábóta­vant sem hefur þýtt lengri biðtíma í bíla­við­gerðum hjá viðskipta­vinum okkar. Með þessu samstarfi erum við að bæta þjón­ustu og stytta biðtíma, en á sama tíma að hugsa vel um umhverfið okkar. Við erum stolt af því að hafa farið þessa leið, en við vonum að sjálf­sögðu að hin trygg­inga­fé­lögin fylgi okkar góða fordæmi. Aðal­heiður og hennar fólk hjá Netpörtum hafa verið að gera frábæra hluti og við hlökkum til áfram­hald­andi samstarfs.“

Aðal­heiður Jacob­sen, eigandi og fram­kvæmda­stjóri Netparta:

„Notkun á notuðum vara­hlutum á Íslandi hefur verið sláandi lítil miðað við það sem við sjáum frá Svíþjóð. Með því að efla gagnsæi og traust um notaða vara­hluti sem og auka fram­boðið á þeim verður bæði sjálf­sagðara og einfaldara að velja þann kost umfram nýjan. Við erum hæst­ánægð með samstarfið við VÍS, en það styður við sjálf­bærni og eykur hlut­fall notaðra vara­hluta í viðgerðum, sem er mjög jákvætt. Sífellt erfiðara er að fá vara­hluti til landsins og það er betra fyrir umhverfið að nýta þær auðlindir sem við höfum aðgang að hér heima. Í þessu skyni höfum við líka opnað vefverslun með notaða vara­hluti til að bæta aðgengi og afgreiðslu þeirra. Þetta ýtir undir að þeir séu raun­veru­legur valkostur þegar kemur að bíla­við­gerð­um.”

Um Netparta

Netpartar ehf. er umhverf­i­svæn endur­vinnsla bifreiða og verslun með notaða vara­hluti. Í starfi Netparta felst öll almenn þjón­usta við umhverf­i­s­vænt niðurrif og förgun ökutækja ásamt flokkun og sölu notaðra vara­hluta. Fyrir­tækið vinnur að því að hámarka umhverf­i­s­væna endur­vinnslu og endur­nýt­ingu sem stuðlar að minni sóun, betra umhverfi og lofts­lagi. Núna er hægt að endur­vinna um 85% af bifreið, en mark­miðið er að ná viðmiði Evrópu­sam­bandsins sem er 95%. Netpartar er leið­andi í umhverf­i­s­vænni endur­vinnslu á bifreiðum og hefur hlotið umhverfis- og gæða­vottun (ISO 14001 og 9001). Þá hlutu Netpartar verð­laun Samtaka atvinnu­lífsins fyrir framtak ársins í umhverf­is­málum árið 2020, en eitt af mark­miðum Netparta er að efla vitund og traust um notkun notaðra vara­hluta í bíla­við­gerðum. Netpartar var stofnað árið 2009 og er stað­sett rétt fyrir utan Selfoss. Eigandi og fram­kvæmda­stjóri Netparta er Aðal­heiður Jacob­sen, en hjá fyrir­tækinu starfa átta manns.

Fréttasafn
Deila frétt