Fréttasafn

|

15.02.2023

Viðræður um samein­ingu VÍS og Fossa fjár­fest­ing­ar­banka

Vátrygg­inga­félag Íslands (VÍS) og hlut­hafar Fossa fjár­fest­ing­ar­banka hafa ákveðið að hefja viðræður um kaup VÍS á öllu hlutafé í Fossum fjár­fest­ing­ar­banka á grund­velli vilja­yf­ir­lýs­ingar um samein­ingu félag­anna. Félögin telja að fyrir­huguð sameining muni styrkja þau til sóknar á spenn­andi tímum á fjár­mála­mark­aði.

Gert er ráð fyrir að hlut­hafar Fossa fjár­fest­ing­ar­banka fái 260 milljón nýja hluti í VÍS fyrir hluta­bréf sín, sem nemur 13,3% hluta­fjár í VÍS eftir hluta­fjáraukn­ingu. Kaupin yrðu háð ýmsum skil­yrðum, svo sem niður­stöðu áreið­an­leikak­ann­ana, samþykki eftir­lits­stofnana og samþykki hlut­hafa­fundar VÍS.

Sameinað félag yrði öflugt fjár­mála­fyr­ir­tæki í sterkri stöðu til þess að nýta sér vaxt­ar­mögu­leika á mark­aði. Það myndi búa yfir fjár­hags­legum styrk, afburða starfs­fólki og sterkum innviðum fyrir framúrsk­ar­andi þjón­ustu á sviði trygg­inga, lánveit­inga, miðl­unar, fyrir­tækja­ráð­gjafar, eign­a­stýr­ingar, sjóð­a­stýr­ingar og sérhæfðrar fjár­mála­þjón­ustu.

Í upphafi er lagt upp með að Guðný Helga Herberts­dóttir, forstjóri VÍS, og Haraldur Þórð­ar­son, forstjóri Fossa fjár­fest­ing­ar­banka, muni sameig­in­lega leiða félagið. Fram­tíð­ar­skipulag samstæðu verður skoðað á næstu vikum, m.t.t. vaxtar, stjórn­ar­hátta og hagræð­ingar.

Stefán Héðinn Stef­áns­son, stjórn­ar­formaður VÍS:

„Hröð samfé­lags- og tækni­þróun með aukinni fjár­tækni, nýrri samkeppni og dreifi­leiðum á markaði hefur umbreytt samkeppn­is­um­hverfi trygg­inga- og fjár­mála­mark­aða. VÍS er í sterkri stöðu til að mæta og taka þátt í þessari þróun. Mikil­vægt er að félagið sé skrefinu á undan og verði virkur þátt­tak­andi í þróun fjár­mála­starf­semi hér landi, með áherslu á arðsaman vöxt og eign­a­stýr­ingu. Fyrsta skrefið í að víkka út starf­semi félagsins á fjár­mála­markaði var stofnun SIV eign­a­stýr­ingar — en með samein­ingu við Fossa fjár­fest­ing­ar­banka eru tekin mark­viss skref í átt að fram­tíð­ar­sýn­inni, sem er að verða spenn­andi valkostur á íslenskum fjár­mála­mark­aði, ásamt því að auka og efla tekju­stoðir félags­ins.“

Haraldur Þórð­ar­son, forstjóri Fossa fjár­fest­ing­ar­banka:

„Fossar fjár­fest­ing­ar­banki hefur verið í sókn undan­farin ár og hefur þjón­u­stað innlenda sem og erlenda fjár­festa á sviði mark­aðsvið­skipta, fyrir­tækja­ráð­gjafar og eign­a­stýr­ingar. Á síðasta ári fékk félagið fjár­fest­ing­ar­banka­leyfi sem fól í sér aukin tæki­færi í þjón­ustu og umsvifum á fjár­mála­mark­aði. Sameining VÍS og Fossa fjár­fest­ing­ar­banka felur í sér spenn­andi tæki­færi — enda eru félögin í ákjós­an­legri stöðu til vaxtar á íslenskum fjár­mála­mark­aði.“

Fréttasafn
Deila frétt