Fréttasafn

|

20.01.2023

Verður ,,stöðu­vatn" á þinni leið?

Gríð­ar­legt vatn er víða að safnast upp á götum. Við hvetjum ökumenn til að gera allt til að komast hjá því að keyra út í þau stöðu­vötn sem hafa mynd­ast.

Vara­samt er að keyra flesta bíla út í stóra polla en þó sérstak­lega rafmagns­bíla vegna mögu­legs tjóns á rafhlöðu bíls­ins. Ef ökumenn neyðast til þess að keyra út í vatnið er mikil­vægt að fara með gát, aka rólega og vera í lágum gír.

Mikil hætta er á að bílar fljóti upp og ökumenn missi stjórn á bílnum ef ekið er hratt í stóra polla eða vatns­rásir á vegum úti. Eins getur vatnið byrgt ökumönnum sýn þegar það gengur yfir bílinn og aðra bíla sem eru í kring.  

Sá klaki sem er víða á götum og bíla­stæðum verður flug­háll við þessar aðstæður. Bílar renna auðveld­lega á honum og eins við sjálf þegar við göngum á honum. Förum því varlega. 

Fréttasafn
Deila frétt