Fréttasafn

|

12.07.2023

Velkomin á VÍS völlinn

Þórsvöllur verður VÍS völl­urinn

Nýlega var undir­rit­aður samn­ingur til þriggja ára milli VÍS og íþrótta­fé­lagsins Þórs um að hinn víðfrægi Þórsvöllur á Akur­eyri verði nú VÍS völl­ur­inn. Enda eiga VÍS og Þór rauða litinn sameig­in­legan.

Ingvi Hrafn Ingva­son, þjón­ust­u­stjóri VÍS á Akur­eyri:

„Það liggur beinast við að Þórsvöll­urinn verði VÍS-völl­ur­inn, enda eigum við fallega rauða litinn sameig­in­legan. Við viljum leggja okkar af mörkum til samfé­lagsins og það er okkur ljúft og skylt að styrkja íþrótt­a­starfið með þessum hætti. Við hlökkum til samstarfs­ins.“

Sveinn Elías Jóns­son, formaður knatt­spyrnu­deild­ar ­Þórs:

„Við erum þakklát VÍS fyrir þetta rausn­ar­lega framlag og samn­inginn til næstu þriggja ára. Þetta skiptir íþrótt­a­starfið miklu máli. Við erum því virki­lega spennt fyrir komandi tímum.“

Fréttasafn
Deila frétt