Fréttasafn

|

03.01.2023

Vatns­tjón víða

Vatns­tjón hafa verið nokkuð algeng að undan­förnu, ekki síst vegna frost­hörku og svo þíðu í kjöl­farið.

Nú er góður tími til þess að huga að forvörnum til þess að koma í veg fyrir vatns­tjón, svo sem að moka snjóinn af svöl­unum og frá niður­föllum svo vatnið komist sína leið. Rétt er að minna á tjón, sem verður þegar vatn lekur inn að utan, eru ekki bóta­skyld. Því viljum við hvetja þig til þess að gera allt sem þú getur til þess að koma í veg fyrir slík tjón svo sem að: 

  • Moka snjó af svölum

  • Moka snjó frá veggjum húsa

  • Moka frá niður­föllum

  • Búa til vatns­rásir að niður­föllum

  • Hreinsa snjó og klaka úr rennum – þó eingöngu án þess að setja sig í hættu

Dæmi um vatns­tjón sem eru almennt ekki bætt: 

  • Leki með þaki

  • Leki með gluggum

  • Leki með svölum

  • Leki um sprungur á veggjum

Mikil­vægt er að fyrir­byggja tjón eins og hægt er, en Sigrún A. Þorsteins­dóttir, sérfræð­ingur í forvörnum hjá VÍS, ræddi nýlega vatns­tjón og helstu forvarnir í útvarps­þætt­inum Reykjavík síðdegis.  Við hvetjum þig eindregið til þess að hlusta. 

Fréttasafn
Deila frétt