Fréttasafn

|

30.11.2023

Vaka virkir reyk­skynj­arar yfir þér og þínum

Það er ekki að ástæðu­lausu að reyk­skynjara hefur verið tileink­aður einn dagur á hverju ári.

Mikil­vægi reyk­skynjara er óumdeilt og oft er talað um að þeir séu ódýr­asta líftrygg­ingin sem hægt er að fá sér. Dagur reyk­skynj­arans er 1. desember og ekki skrítið að það sé í upphafi aðventu þar sem flestir brunar á heim­ilum verða í desem­ber.

  • Virkir reyk­skynj­arar eiga að vera í öllum rýmum heim­il­is­ins.

  • Algengast er að reyk­skynj­arar hafi 9 vatta rafhlöðu sem þarf að skipta um árlega eða rafhlöðu sem lifir í 10 ár.

  • Prófa þarf reyk­skynjara a.m.k. árlega.

  • Skynjara á að stað­setja sem næst miðju lofts, ekki nær vegg eða ljósi en 30 sm.

  • Líftími reyk­skynjara er 10 ár, eftir þann tíma þarf að skipta skynj­ar­anum út.

  • Svo má sjá skila­boðin um reyk­skynj­arann í máli og myndum.

Ef vantar 9 vatta rafhlöðu í reyk­skynj­arana þá má nálgast þær á skrif­stofum VÍS.

Fréttasafn
Deila frétt