Fréttasafn
|31.05.2023
Tveir nýir forstöðumenn hjá VÍS
Rúnar Örn og Hafsteinn eru nýir forstöðumenn hjá VÍS. Þeir hafa báðir hafið störf hjá félaginu.

Rúnar Örn Ágústsson hefur verið ráðinn forstöðumaður stofnstýringar og verðlagningar þar sem hann ber ábyrgð á verðlagningu, viðskiptakjörum og afkomu af tryggingum félagsins. Hann ber einnig ábyrgð á áhættumati fyrirtækja og endurnýjun á tryggingum hjá einstaklingum og fyrirtækjum. Rúnar hóf störf hjá VÍS árið 2019 sem sérfræðingur í vörustjórnun, stofnstýringu og áhættumati. Áður starfaði hann hjá Mannviti við verkefnastjórn þar sem megináherslan var á kostnaðar-og verkáætlanir sem og tölulegar greiningar. Rúnar er með meistaragráðu (M.Sc.) í byggingarverkfræði frá Danska tækniháskólanum (DTU) og B.Sc.-gráðu í umhverfis-og byggingaverkfræði frá Háskóla Íslands. Það er gaman að geta þess að Rúnar er einnig afreksmaður í íþróttum, þá sérstaklega í þríþraut og hjólreiðum. Hann hefur tvisvar orðið Íslandsmeistari í hjólreiðum og keppti 2019 og 2021 fyrir Ísland á heimsmeistaramótinu í hjólreiðum.
Hafsteinn Esekíel Hafsteinsson hefur verið ráðinn sem forstöðumaður einstaklingsviðskipta hjá VÍS. Hann ber ábyrgð á því að efla og samræma sókn á einstaklingsmarkaði um allt land sem og að tryggja framúrskarandi þjónustu í einstaklingsviðskiptum. Áður starfaði hann sem forstöðumaður einstaklingsráðgjafar hjá Sjóvá. Hafsteinn hefur einnig starfað sem flugliði hjá Icelandair og sem rekstrarstjóri hjá Bestseller á Íslandi. Einnig er gaman að geta þess að Hafsteinn er liðtækur á dansgólfinu og hefur unnið til verðlauna í samkvæmisdönsum. Hann hefur tekið þátt sem söngvari og dansari í leiksýningum og má þar á meðal nefna söngleikinn Mary Poppins í uppsetningu Borgarleikhússins hér um árið. Hann hefur stundað nám í viðskiptafræði við Háskólanum í Reykjavík.
Ingibjörg Ásdís Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri sölu og þjónustu hjá VÍS:
„Ég fagna komu Rúnars og Hafsteins í öflugt teymi sóknar og sölu hjá VÍS. Tryggingar eru mikilvægar í lífi okkar allra, því rétt vernd getur skipt öllu máli. Við viljum því tryggja að viðskiptavinir okkar séu rétt tryggðir svo við getum verið traust bakland í óvissu lífsins. Ég trúi því að reynsla þeirra og þekking muni hjálpi okkar enn frekar að ná metnaðarfullum markmiðum okkar.“
Rúnar Örn og Hafsteinn Esekíel