Fréttasafn

|

21.02.2023

Tryggjum sýni­leika furðu­vera á ösku­daginn

Mörg börn leggja mikinn metnað í búninga og lagaval á ösku­dag­inn. Með það vega­nesti þramma þau á milli fyrir­tækja og jafnvel heim­ila, syngja og fá nammi eða annan glaðning að launum.

Skemmti­legur dagur þar sem gott er að huga að sýni­leika barn­anna og fara í stuttu máli yfir helstu umferð­ar­reglur til að minnka líkur á að þau gleymi sér í hita leiksins og hlaupi yfir götur án þess að huga að umhverf­inu.

Eftir daginn eru börnin svo mörg hver vel byrg af nammi og öðru góðgæti sem getur verið skyn­samt að borða ekki allt samdæg­urs. Eins ef lítil systkini eru á heim­ilinu þarf að passa upp á að þau komist ekki í veisluna þar sem þar geta verið smáir hlutir og annað sem geta verið vara­samir fyrir þau.

Tekið verður vel á móti öllum börnum sem leggja leið sína á þjón­ustu­skrif­stofur okkar á ösku­daginn :-)

Fréttasafn
Deila frétt