Fréttasafn

|

16.10.2023

Tími vetr­ar­dekkja

Vetur konungur er farinn að gera vart við sig og því fylgir að huga þarf að dekkjum bíls­ins.

Góð vetr­ar­dekk með réttum loft­þrýst­ingi auka stöð­ug­leika, stytta heml­un­ar­vega­lengd, minnka líkur á að bíll fljóti upp og eru orku­spar­andi.

Hafa ber í huga að:

  • Dekkin séu gerð fyrir vetr­ar­að­stæður

  • Mynstur­dýpt sé að lágmarki 3 mm og það í öllu mynstrinu

  • Dekk séu ekki miseydd

  • Hreinsa dekkin

  • Athuga hvort loft­þrýst­ingur sé réttur og sá sami í öllum dekkj­unum

  • Skoða hvort þurfi að svissa fram- og aftur­dekkjum

  • Ef þyngd bíls er 3.500 kg. að þyngd þá þurfa dekkin að vera öll sömu gerðar

Ef þú þarft að endur­nýja dekkin þá hvetjum við þig til að skoða góða afslætti hjá samstarfs­að­ilum okkar í VÍS appinu.

Fréttasafn
Deila frétt