Fréttasafn

|

03.04.2023

Tími sumar­dekkja nálgast - kynntu þér dekkja­afsláttinn

Við fögnum því að hita­stigið fari hækk­andi þessa dagana og tími fyrir sumar­dekkin fari að nálg­ast. Eins og flestum er ljóst, þá eru góð dekk gríð­ar­lega mikilvæg þar sem þau auka stöð­ug­leika, stytta heml­un­ar­vega­lengd, minnka líkur á að bíll fljóti upp í bleytu og minnka eyðslu bíls­ins.   

Við hvetjum þig til að fara vel yfir dekkin og ef þig vantar ný þá bendum við á okkar frábæru samstarfs­aðila sem þú finnur í VÍS appinu og bjóða viðskipta­vinum okkar m.a. afslátt af dekkjum, dekkja­skiptum og fleiri vörum.

Góðir dekkja­punktar:   

  • Lágmarks mynst­urs­dýpt sumar­dekkja má ekki vera minni en 1,6 mm. Í VÍS appinu getur þú nálgast dekkjalykil sem mælir mynst­urs­dýpt.  

  • Fram­leiðsluár er tilgreint á dekkinu en ekki er æski­legt að keyra um á dekkjum sem eru 10 ára eða eldri.  

  • Dekk á bíl sem er 3.500 kg eða léttari skulu öll vera sömu gerð­ar.  

  • Nagla­dekk má ekki nota frá 14. apríl til 31. október til nema færð og veður segi annað.  

Ef þú ert á heils­árs­dekkjum er mikil­vægt að:  

  • Þvo þau með dekkja­hreinsi eftir vetur­inn.  

  • Fara yfir hvort mynst­urs­dýpt sé næg.  

  • Athuga loft­þrýst­ing­inn.  

  • Skoða hvort þurfi að svissa fram- og aftur­dekkjum en framdekk eyðast oft meira.  

Fréttasafn
Deila frétt