Fréttasafn

|

16.01.2023

Tilnefn­ing­ar­nefnd VÍS óskar eftir fram­boðum til stjórnar

Tilnefn­ing­ar­nefnd VÍS auglýsir eftir fram­boðum eða tilnefn­ingum til stjórnar VÍS vegna aðal­fundar félagsins sem haldinn verður fimmtu­daginn 16. mars 2023.

Frestur til að skila inn fram­boðum og tilnefn­ingum sem hljóta eiga umfjöllun tilnefn­ing­ar­nefndar er til föstu­dagsins 3. febrúar 2023.

Tilkynning um framboð skal vera á sérstöku eyðu­blaði sem unnt er að nálgast hér og á vefsvæði tilnefn­ing­ar­nefndar á heima­síðu VÍS. Útfylltum eyðu­blöðum skal skila á netfangið: tilnefn­ing­ar­nefnd@vis.is.

Almennur fram­boðs­frestur til stjórnar samkvæmt samþykktum VÍS er fimm dögum fyrir aðal­fund. Starf­semi tilnefn­ing­ar­nefndar takmarkar ekki heimild fram­bjóð­enda til að skila inn fram­boðum til stjórnar allt fram að því tíma­marki, en um þau framboð verður ekki fjallað í tillögu tilnefn­ing­ar­nefndar.

Rökstudd tillaga tilnefn­ing­ar­nefndar um bestu samsetn­ingu stjórnar verður birt samhliða aðal­fund­ar­boði.

Fréttasafn
Deila frétt