Fréttasafn

|

18.01.2023

Mikil­vægt að undirbúa sig fyrir hlákuna

Á föstudag er spáð miklum hlýindum og allt að 10°C, nokkuð hvössum vindi og rign­ingu á Suður- og Vest­ur­landi. Við þessar aðstæður má búast við mikilli hláku og asahláku þar sem rignir.

Mjög sleipt verður á klak­anum, vatns­elgur víða og hætta á að vatn leki inn í hús, sér í lagi ef forvörnum er ekki sinnt.

Við hvetjum þig til að bregðast við eins og kostur er og hafa eftir­far­andi í huga:

  • Moka frá niður­föllum og tryggja að vatn eigi greiða leið. Reyk­vík­ingar geta séð stað­setn­ingu niður­falla á Borg­ar­vefsjá og svo er líka oft hægt að sjá þau á myndum ja.is.

  • Moka snjó frá húsveggjum, af svölum og pöllum.

  • Tryggja að frárennsli frá þökum og þakrennum sé í lagi.

  • Ná niður grýlu­kertum og snjó­hengjum af húsþökum þar sem hægt er, annars afmarka svæði fyrir neðan með keilum og borða.

  • Leggja bíl ekki við hús þar sem hætta er á að snjór komi niður af þaki né leyfa börnum að vera þar að leik.

  • Vera meðvituð um hvort snjó­hengjur séu þar sem þú gengur.

  • Fara varlega sama hvort er gang­andi, hjólandi eða keyr­andi þar sem snjór og klaki er til staðar eins og á stígum, götum og bíla­stæðum.

  • Draga úr hraða bíls ef vatns­rásir eru á götum til að minnka líkur á að hann fljóti upp og vatn byrgi sýn.

Fréttasafn
Deila frétt