Fréttasafn

|

03.11.2023

Tjón af völdum jarð­skjálfta og eldgosa

Hér er að finna gagn­legar upplýs­ingar um hvernig trygg­ingar taka á tjónum af völdum jarð­skjálfta og eldgosa.

Er húsið mitt tryggt ef það verður tjón af völdum eldgoss? 

Já, Nátt­úru­ham­fara­trygging Íslands (NTÍ) bætir tjón á húseignum vegna eldgoss og jarð­skjálfta en eign­irnar þurfa að vera bruna­tryggðar hjá trygg­inga­fé­lög­unum. Bruna­bótamat segir til um hámarks trygg­ing­ar­fjár­hæð. Á vis.is er hægt að nálgast upplýs­ingar um trygg­ing­ar­fjárhæð fast­eign­ar­innar með því að skoða bruna­trygg­inguna eða á fast­eigna­skrá Húsnæðis og mann­virkja­stofn­unar. Tjón er tilkynnt á síðu NTÍ.  

Hvað með innbúið? Er það tryggt? 

NTÍ bætir einnig tjón á innbúi og öðrum lausa­munum ef heim­ilis- eða lausa­fjár­trygging er til staðar. Ef þú ert með heim­il­is­trygg­ingu, F plús fjöl­skyldu­trygg­ingu eða lausa­fjár­trygg­ingu þá er innbúið bruna­tryggt og þar af leið­andi bætir NTÍ það. Þú getur séð upplýs­ingar um trygg­ing­ar­fjárhæð innbúsins með því að skrá þig inn á vis.is og skoða heim­il­is­trygg­inguna eða F plús trygg­inguna þína. 

Hvernig veit ég hvort ég sé rétt tryggður? 

Þú getur nálgast yfirlit yfir þínar trygg­ingar með því að skrá þig inn á vis.is  

Mikil­vægt er að vera bruna­tryggður, en þá bætir NTÍ tjón á húseignum og innbúi vegna eldgoss og jarð­skjálfta. Ef þú ert með heim­il­is­trygg­ingu, F plús fjöl­skyldu­trygg­ingu eða lausa­fjár­trygg­ingu þá er innbúið bruna­tryggt og tjónið bætt hjá NTÍ. 

Við erum til staðar í síma, netspjalli, tölvu­pósti og á skrif­stofum okkar og við veitum ráðgjöf varð­andi trygg­inga­vernd. Ef þú ert óviss, þá geturðu alltaf hringt í okkur í síma 560-5000 eða sent okkur tölvu­póst á vis@vis.is ert líka velkom­in/n til okkar í kaffi og spjall. Við skulum fara yfir trygg­ing­arnar með þér. 

Ég uppfærði trygg­ing­arnar mínar nýlega. Eru þær ekki örugg­lega í gildi? 

Jú, þær eru í gildi. Samkvæmt tilkynn­ingu frá NTÍ kemur fram að ekki er hægt að breyta trygg­ing­unum sínum eða gera nýja trygg­inga­samn­inga um eignir á hættu­svæðum eftir að búið er að lýsa yfir neyð­ar­ástandi almanna­varn­a.  

Starfs­fólk VÍS var í Grindavík miðviku­daginn 8. nóvem­ber, fimmtu­daginn 9. nóvember og föstu­daginn 10. nóvember til þess að aðstoða Grind­vík­inga að fara yfir trygg­ing­arnar sínar. Neyð­arstigi almanna­varna var svo lýst yfir síðdegis föstu­daginn 10. nóvem­ber. 

Hvað með bílinn minn? 

Ökutæki sem skilin voru eftir við rýmingu í Grindavík þurfa að vera með bruna­trygg­ingu ökutækja, ekki er nóg að hafa kaskó, til þess að tjón fáist bætt frá NTÍ ef til eldgoss kemur. Ekki er hægt að gera breyt­ingar á trygg­ing­unum sínum, til dæmis að bruna­tryggja bílinn sinn, eftir að almanna­varnir lýstu yfir neyð­arstigi þann 10. nóvember síðast­lið­inn.   

Hvað með rekst­urinn minn? Gildir rekstr­ar­stöðv­un­ar­trygging í þessum aðstæðum? 

Því miður fellur tjón af völdum eldgoss eða nátt­úru­ham­fara ekki undir rekstr­ar­stöðv­un­ar­trygg­ingu hvorki hjá VÍS eða NTÍ. 

Get ég fengið aðstoð við að meta trygg­ing­arnar mínar? 

Alveg sjálfsagt, en líkt og kom fram í tilkynn­ingu frá NTÍ þá er ekki hægt að breyta trygg­ingum eða kaupa nýjar, á þeim svæðum þar sem það er í gildi, eftir að búið er að lýsa yfir neyð­arstigi almanna­varna, sem var gert síðdegis föstu­daginn 10. nóvem­ber. Sláðu endi­lega á þráðinn til okkar í síma 560-5000, kíktu á netspjallið eða sendu okkur tölvu­póst á vis@vis.is. Svo ertu velkom­in/n í kaffi til okkar.  

Við tökum vel á móti þér.  

Fréttasafn
Deila frétt