Fréttasafn

|

04.05.2023

Jarð­skjálftar í Mýrdals­jökli

Ríkis­lög­reglu­stjóri ásamt Lögreglu­stjór­anum á Suður­landi hafa lýst yfir óvissu­stigi vegna jarð­skjálfta í Mýrdals­jökli. 

Við hvetjum alla sem búa og eru að ferðast nærri Mýrdals­jökli til að fylgjast vel með fréttum og taka fullt mark á viðvör­unum og lokunum sem hafa verið gefnar út. Jarð­skjálft­arnir eru óvenju stórir og því rétt að fylgjast vel með fram­vind­unni og hvort annað fylgi í kjöl­far­ið.  Rétt er þó að geta þess að hvorki hefur mælst gosórói né hlaupórói samhliða þessum jarð­skjálftum.

Fréttasafn
Deila frétt