Fréttasafn

|

15.06.2023

Hlut­hafar VÍS samþykkja kaupin á Fossum

Kaup VÍS á Fossum fjár­fest­ing­ar­banka voru samþykkt með afger­andi niður­stöðu á hlut­hafa­fundi VÍS sem haldinn var miðviku­daginn 14. júní. sl.

Á hlut­hafa­fund­inum var tillaga um hækkun hluta­fjár félagsins um 245 millj­ónir króna að nafn­verði vegna kaup­anna samþykkt með 83% greiddra atkvæða. Hlut­hafar Fossa fá greidda 245 milljón nýja hluti í VÍS, sem nemur 12,62% hluta­fjár eftir hluta­fjáraukn­ingu.

Samn­inga­við­ræður félag­anna hófust í febrúar á þessu ári.

Fréttasafn
Deila frétt