Fréttasafn

|

10.06.2023

Hlut­hafa­fundur

Hlut­hafa­fundur VÍS verður haldinn 14. júní nk.

Stjórn Vátrygg­inga­fé­lags Íslands hf. hefur boðað til hlut­hafa­fundar sem haldinn verður í höfuð­stöðvum félagsins að Ármúla 3, 108 Reykja­vík, miðviku­daginn 14. júní kl. 16:00, en auk þess verður boðið upp á rafræna þátt­töku.

Hlut­hafar eða umboðs­menn hlut­hafa sem hafa hug á því að sækja hlut­hafa­fund­inn, hvort sem er rafrænt eða á staðnum, eru ­beðnir um að skrá sig á vefsíð­unni:

Frestur til að skrá sig er til kl. 16:00 þann 12. júní, eða tveimur dögum fyrir hlut­hafa­fund­inn. Með innskrán­ingu þarf að fylgja mynd af skil­ríkjum og umboð, ef við á.

Endanleg dagskrá fund­arins er í viðhengi. Öll gögn vegna hlut­hafa­fundar, s.s. álykt­un­ar­til­lögur stjórnar og grein­ar­gerð með þeim, kynning vegna hlut­hafa­fundar, skýrslu stjórnar vegna hluta­fjár­hækk­unar, umsögn löggilts endur­skoð­anda og skýrslu löggilts endur­skoð­anda, má finna á vefsíðu félagsins.

Fréttasafn
Deila frétt