Fréttasafn

|

25.08.2023

Hildur Björk nýr forstöðu­maður mark­aðs­mála og upplif­unar hjá VÍS

Hildur Björk Hafsteins­dóttir hefur verið ráðin forstöðu­maður mark­aðs­mála og upplif­unar hjá VÍS.

Hildur Björk hefur víðtæka þekk­ingu á mark­aðs­málum og býr yfir umfangs­mik­illi reynslu sem stjórn­andi. Undan­farið ár hefur Hildur starfað sem forstöðu­maður hjá ISAVIA þar sem að hún leiddi mark­aðsmál félagsins og upplifun farþega á Kefla­vík­ur­flug­velli.

Þar áður starfaði Hildur sem forstöðu­maður mark­aðs­mála hjá Símanum. Hún er með meist­ara­gráðu í viðskipta­fræði frá Háskól­anum í Reykjavík og BS-gráðu í sömu grein frá Háskóla Íslands.

Á árunum 2018-2022, sat Hildur Björk í stjórn ÍMARK, samtökum íslensks mark­aðs­fólks. Hún hefur einnig kennt mark­aðs­fræði í meist­ara­námi við Háskóla Íslands. Hildur Björk hefur störf 1. sept­ember nk.

„Ég er stolt af því að hefja störf hjá VÍS en mér finnst félagið vera á spenn­andi vegferð. Ég hlakka til að leggja mitt af mörkum til þess að styrkja félagið enn frekar í sókn þess á íslenskum trygg­inga­mark­aði“ segir Hildur Björk Hafsteins­dóttir, forstöðu­maður mark­aðs­mála og upplif­unar.

Ingi­björg Ásdís Ragn­ars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri sölu og þjón­ustu, hlakkar til samstarfsins.„Við erum virki­lega ánægð með að hafa fengið Hildi til liðs við okkar frábæra teymi. Hildur er reynslu­mikill leið­togi og öflug mark­aðs­mann­eskja sem mun koma sterk inn í þau verk­efni sem framundan eru. VÍS er í umbreyt­ing­ar­ferli og í mikilli sókn um land allt. Vörumerkið okkar og upplifun viðskipta­vina eru þar í lykil­hlut­verki. Ég er sann­færð um að Hildur sé rétta mann­eskjan til þess að taka það áfram með okkur.“

Fréttasafn
Deila frétt