Fréttasafn

|

11.01.2023

Helgi hættir sem forstjóri VÍS

Stjórn VÍS hefur samið um starfslok við Helga Bjarna­son, sem forstjóra félags­ins, en hann hefur leitt starf­semi VÍS frá 1. júlí 2017. Guðný Helga Herberts­dóttir, fram­kvæmda­stjóri sölu og þjón­ustu, mun taka tíma­bundið við starfi forstjóra VÍS.

Stjórn Vátrygg­inga­fé­lags Íslands hf. (VÍS) hefur markað stefnu sem felur í sér ákveðin kafla­skil í rekstri félags­ins. Markmið stjórn­ar­innar er að gera VÍS að enn vænlegri fjár­fest­inga­kosti á markaði með skýrri sýn á vöxt, þróun og fjár­magns­skipan. Liður í því er að gera félagið sölu­drifn­ara, efla tengsl við viðskipta­vini og vera í farar­broddi við að innleiða nýjungar í trygg­inga­starf­semi. Samhliða stefnir VÍS á að verða virkur þátt­tak­andi í þróun fjár­mála­starf­semi á Íslandi með áherslu á arðsaman vöxt, eign­a­stýr­ingu og ýmis önnur tæki­færi sem hafa opnast á fjár­mála­mark­aði.

Á þessum kafla­skilum lætur Helgi Bjarnason af störfum sem forstjóri, en hann hefur leitt starf­semi VÍS frá 1. júlí 2017. Stjórn VÍS mun ráða nýjan forstjóra til félagsins á næst­unni og tilkynna um það sérstak­lega.

Guðný Helga Herberts­dóttir, fram­kvæmda­stjóri sölu og þjón­ustu, mun taka tíma­bundið við starfi forstjóra VÍS. Guðný hefur verið í leið­andi hlut­verki í þróun félagsins á undan­förnum árum og hefur starfað hjá félaginu síðan 2016. 

Samkeppn­is­hæfni efld

Það er mat stjórnar VÍS að nú sé rétti tíminn til að gera breyt­ingar á hlut­verki forstjóra og hefja nýjan kafla á þeim góða grunni sem lagður hefur verið. VÍS þarf að vera í sífelldu breyt­inga­ferli til þess að geta verið skrefinu á undan í þróun trygg­inga- og fjár­mála­markaða á Íslandi. Forstjóra­skipti nú eru hluti af því ferli. Mark­miðið er að VÍS verði í farar­broddi íslenskra trygg­inga­fé­laga, veiti framúrsk­ar­andi þjón­ustu og sé í nánum tengslum við viðskipta­vini sína.

Eign­a­stýr­inga­fé­lagið SIV, sem er í meiri­hluta­eigu VÍS, mun hefja starf­semi á næst­unni og bjóða fjár­festum og viðskipta­vinum VÍS spenn­andi tæki­færi. Er það hluti af stefnu­mörkun stjórnar og fyrsta skrefið í að víkka út starf­semi félagsins á fjár­mála­mark­aði.

Vöxtur á góðum grunni

VÍS hefur undir forystu Helga Bjarna­sonar gengið í gegnum miklar breyt­ingar undan­farin ár. Helstu innviðir félagsins hafa verið uppfærðir eða endur­nýj­aðir, mark­visst hefur verið fjár­fest í upplýs­inga­tækni og staf­rænni þróun og býr félagið nú að öflugum kerfum sem auka hagkvæmni og öryggi í rekstri. Stjórn­un­ar­legir innviðir félagsins hafa enn fremur verið styrktir veru­lega. Stjórn­kerfi félagsins er til fyrir­myndar og áhersla lögð á fagmennsku á öllum sviðum.

VÍS hefur á að skipa öflugum og metn­að­ar­fullum hópi góðs starfs­fólks sem vinnur af heil­indum fyrir félagið og viðskipta­vini þess. VÍS er því í góðri stöðu til að sækja fram á nýjum forsendum með nýjum áhersl­um. 

Stjórn VÍS þakkar Helga fyrir mikil­vægt framlag hans til uppbygg­ingar félagsins og gott samstarf. 

Fréttasafn
Deila frétt