Fréttasafn

|

24.02.2023

Guðný Helga ráðin forstjóri

Gengið hefur verið frá ráðn­ingu Guðnýjar Helgu Herberts­dóttur í starf forstjóra VÍS — en hún hefur verið starf­andi forstjóri síðan 10. janúar sl.

Guðný Helga hefur verið í fram­kvæmda­stjórn félagsins síðan 2017. Hún hefur frá síðasta vori starfað sem fram­kvæmda­stjóri sölu og þjón­ustu en var áður fram­kvæmda­stjóri staf­rænnar þróunar. Hún hóf störf hjá félaginu árið 2016 sem mark­aðs­stjóri. Guðný Helga hefur verið í leið­andi hlut­verki í stefnu­mótun félagsins á undan­förnum árum. Hún stýrði staf­rænni umbreyt­ingu félagsins og innviða uppbygg­ingu í upplýs­inga­tækni­málum. Hún hefur leitt stefnu­mark­andi verk­efni s.s. Ökuvísi, þróun þjón­ustugáttar félagsins og nýtt vild­ar­kerfi.

Guðný Helga er með stjórn­un­ar­gráðu (AMP) frá Viðskipta­há­skól­anum IESE í Barcelona á Spáni. Hún er jafn­framt með meist­ara­gráðu frá Viðskipta­há­skól­anum í Árósum í Danmörku og B.S. gráðu í viðskipta­fræði frá Háskóla Íslands.

Í síðustu viku var tilkynnt um viðræður VÍS og Fossa um kaup á hlutafé þess síðar­nefnda. Guðný Helga mun leiða trygg­inga­hluta starf­sem­innar í sameinuðu félagi.

Stefán Héðinn Stef­áns­son, stjórn­ar­formaður VÍS:

„Framundan eru spenn­andi tímar hjá félaginu þar sem aukin áhersla er lögð á sókn þess. Guðný Helga kom inn í nýtt hlut­verk í upphafi árs af festu og öryggi og nýtur mikils trausts, bæði stjórnar og starfs­fólks. Ég tel að hún sé sú rétta til þess að leiða trygg­inga­fé­lagið til fram­tíðar. Guðný Helga hefur starfað hjá félaginu undan­farin rúm sex ár og hefur tekið þátt í þróun og stefnu­mótun þess. Þekking hennar, reynsla og styrk­leikar eiga eftir að leika lykil­hlut­verk í vegferð­inni framundan ̶ enda er hún framúrsk­ar­andi stjórn­andi. Ég hlakka til áfram­hald­andi samstarfs.“

Guðný Helga Herberts­dóttir, forstjóri VÍS:

„Und­an­farin ár hefur VÍS tekið miklum breyt­ingum. Stafræn þróun hefur verið á fullri ferð og alger umbreyting átt sér stað hjá félag­inu. Nú taka við ný og spenn­andi verk­efni. Trygg­ingar skipta okkur öll miklu máli ̶ því rétt vernd getur skipt sköpum í lífi okkar allra. Það er okkar verk­efni að gera trygg­ingar skilj­an­legar og aðgengi­legar. Við munum halda áfram að breyta því hvernig trygg­ingar virka og hafa hugrekki til þess að fara ótroðnar slóðir. VÍS er öflugt félag sem býr yfir framúrsk­ar­andi mannauði ̶ og nú tökum við enn stærri skref til móts við nýja tíma með hags­muni viðskipta­vina okkar að leið­ar­ljósi. Ég hlakka til vegferð­ar­innar sem er framund­an.“

Fréttasafn
Deila frétt