Fréttasafn

|

28.12.2023

Gleði­legt nýtt og öruggt ár

Flug­eldar eru stór partur af áramótum með sínum ljósum og gleði fyrir unga sem aldna.

Mikil­vægt er að umgangast þá af varúð til að koma í veg fyrir slys.

  • Förum eftir leið­bein­ingum.

  • Virðum aldurs­mörk og gætum að börnum.

  • Munum að áfengi og flug­eldar fara ekki saman.

  • Notum örygg­is­gler­augu.

  • Notum ullar- eða skinn­hanska.

  • Virðum fjar­lægð­ar­mörk frá skot­stað um 20 metra.

  • Notum traustar undir­stöður og slétt undirlag fyrir stand­blys og skot­kökur.

  • Ef flug­eldakaka er í kassa, skerum flipa kassans af áður en skotið er.

  • Kveikjum í með útréttri hendi og víkjum strax frá.

  • Ef flug­elda­vara virkar ekki eins og á að vera förum ekki strax að henni.

  • Munum að það er hált úti og spari­skórnir ekki þeir stöm­ustu.

Njótum áramót­anna með gleði í hjarta. Með ósk um ánægjuleg áramót og heilla­ríkt ár.

Fréttasafn
Deila frétt