Fréttasafn

|

30.08.2023

Fyrsta haust­lægðin

Á föstu­dags­kvöld og fram á laug­ardag heim­sækir fyrsta haust­lægðin okkur.

Íbúar á Suður- og Vest­ur­landi ættu að undirbúa sig undir veðrið og má búast við góðum hvelli á Höfuð­borg­ar­svæðinu og Reykja­nesi.

Við hvetjum alla til að nota fimmtu­daginn og föstu­daginn til að ganga frá lausa­munum, allt frá garð­hús­gögnum, trampólínum, rusla­tunnum og lausa­munum á vinnusvæðum. Mikið vatns­veður fylgir einnig veðrinu og er gott að ganga úr skugga um að niður­föll utan­dyra virki sem skyldi.

Í þeim vind­styrk sem er spáð borgar sig ekki að vera á ferð­inni á farar­tækjum sem taka mikinn vind á sig eða vera með eftir­vagn. Þunga­flutn­ings­bíl­stjóra og bílstjóra stærri farar­tækja eins og rútum og smárútum hvetjum við til að fara eftir varúð­ar­við­miðum vinda sem finna má á heima­síðu Vega­gerð­ar­innar og VÍS.

Fréttasafn
Deila frétt