Fyrirmyndarfyrirtæki í fimmta sinn
VÍS er eitt af fyrirmyndarfyrirtækjum VR ársins 2023.
Við erum stolt af því að VÍS er eitt af fyrirmyndarfyrirtækjum VR ársins 2023. VÍS tilheyrir hópi stórra fyrirtækja með 70 starfsmenn eða fleiri. Fimmtán efstu sætin í hverjum stærðarflokki fá viðurkenninguna Fyrirmyndarfyrirtæki og er VÍS eitt þeirra. Niðurstaðan byggir á könnun sem send er á alla félagsmenn VR og þúsundir annarra á almennum vinnumarkaði. Spurt er um stjórnun, launakjör, starfsanda, jafnrétti, starfsánægju, og fleira. Þau fyrirtæki sem skara fram úr í könnuninni hljóta formlega viðurkenningu.
Þetta er í fimmta skiptið sem VÍS hlýtur þessa nafnbót. Anna Rós Ívarsdóttir, mannauðsstjóri VÍS, er ánægð með viðurkenninguna . „Við erum stolt af því að tilheyra þessum flotta hópi fyrirtækja. Við leggjum mikla áherslu á að vera til fyrirmyndar og það er frábært að fá staðfestingu á því."