Fréttasafn

|

08.09.2023

Er örbylgju­loftnet hjá þér?

Örbylgju­loftnet voru víða sett upp á sínum tíma til að ná áskrift­ar­sjón­varpi Fjölvarpsins en það hætti útsend­ingum árið 2017.

Á höfuð­borg­ar­svæðinu er enn þúsundir loft­neta uppsett og virk. Ýmsir ókostir fylgja því og er þar alvar­legast bruna­hætta. Fyrir nokkru kviknaði t.a.m. í þaki fjöl­býl­is­húss vegna þessa. Við hvetjum alla sem hafa slíkan búnað hjá sér til að aftengja hann til að koma í veg fyrir þessa hættu.

Fjar­skipta­fyr­ir­tækin hafa einnig verið að kljást við trufl­anir á farsíma­sam­bandi af völdum þessara loft­neta og gildir þá engu hvort um er að ræða símtöl, skilaboð eða netnotkun.

Fréttasafn
Deila frétt