Fréttasafn

|

02.08.2023

Brynjar Þór nýr fjár­mála­stjóri sameinaðs félags VÍS og Fossa

Brynjar Þór Hreinsson hefur verið ráðinn fjár­mála­stjóri sameinaðs félags VÍS og Fossa.

Brynjar hefur mikla reynslu af innlendum fjár­mála­markaði en hann hefur frá árinu 2018 starfað sem forstöðu­maður eign­a­stýr­ingar Stapa lífeyr­is­sjóðs. Þar áður var hann forstöðu­maður sérhæfðra fjár­fest­inga hjá Íslenskum verð­bréfum og forstöðu­maður eign­a­stýr­ingar hjá Straumi fjár­fest­ing­ar­banka. Brynjar hefur auk þess fjöl­breytta reynslu af störfum erlendis m.a. sem forstöðu­maður á lána­sviði Straums-­Burðarás og verið búsettur í London þar sem hann var fram­kvæmda­stjóri eignaum­sýslu ALMC ásamt því að vera fram­kvæmda­stjóri CB Hold­ing, sem var um tíma stærsti eigandi West Ham United.

Brynjar Þór er með MBA-gráðu frá Háskól­anum í Reykja­vík, próf í verð­bréfa­við­skiptum og BS-gráðu í viðskipta­fræði frá sama skóla.

Sameinað félag öflugt á fjár­mála­markaði

Hlut­hafar VÍS samþykktu kaupin á Fossum 14. júní sl. en kaupin voru háð fyrir­vörum sem nú hefur öllum verið aflétt fyrir utan fyrir­vara um samþykki Fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands fyrir því að VÍS fari með virkan eign­ar­hlut í Fossum fjár­fest­ing­ar­banka hf. og Glym hf., og yfir 30% eign­ar­hlut í T plús hf.

Brynjar Þór mun bera ábyrgð á fjár­málum samstæðu ásamt því að taka virkan þátt í viðskipta­þróun sameinaðs félags. Brynjar mun jafn­framt taka sæti í fram­kvæmda­stjórn þess. Haraldur Þórð­arson mun stýra rekstri samstæð­unnar, Guðný Helga Herberts­dóttir trygg­ing­a­rekstr­inum, Stein­grímur Arnar Finnsson fjár­fest­ing­ar­banka­starf­sem­inni og Arnór Gunn­arsson SIV eign­a­stýr­ingu.

Sameinað félag verður öflugt fyrir­tæki á fjár­mála­markaði með víðtækar starfs­heim­ildir til fjár­mála­þjón­ustu. Sameinað félag byggir á 106 ára sögu, breiðum viðskipta­manna­grunni, sterkum efna­hagi og er með víðtæk tengsl við atvinnulíf og fjár­mála­mark­aði. Þetta eru öflugir innviðir fyrir framúrsk­ar­andi þjón­ustu á sviði trygg­inga, fjár­fest­ing­ar­banka, einka­banka, sjóða- og eign­a­stýr­ingar og annarrar sérhæfðrar fjár­mála­þjón­ustu.

Brynjar Þór Hreins­son, nýr fjár­mála­stjóri sameinaðs félags VÍS og Fossa:

„Framundan eru spenn­andi tímar hjá VÍS í kjölfar stofn­unar SIV eign­a­stýr­ingar og samein­ingar við Fossa fjár­fest­ing­ar­banka. Samstæða þessara öflugu félaga býður upp á fjöl­mörg tæki­færi til vaxtar á trygg­inga- og fjár­mála­mark­aði. Ég er stoltur að taka við starfi fjár­mála­stjóra samstæð­unnar og fullur tilhlökk­unar að vinna með framúrsk­ar­andi starfs­mönnum félag­anna að áfram­hald­andi vegferð og sókn þeirra.”

Fréttasafn
Deila frétt