Fréttasafn

|

08.09.2023

Brunar af völdum rafhlaupa­hjóla

Brunum sem rekja má til hleðslu rafhlaupa­hjóla fer fjölg­andi.

Mikil­vægt er að hlaða rafhlaupa­hjólin eins örugg­lega og hægt er sérstak­lega ef þau eru hlaðin innan­dyra.

  • Hafa reyk­skynjara í rýminu þar sem hlaðið er.

  • Hafa slökkvi­búnað til staðar líkt og eldvarna­teppi og slökkvi­tæki.

  • Ekki hlaða rafhlaupa­hjól sem hefur fengið högg þar sem rafhlaðan er nema fag­aðili hafi skoðað hjólið og stað­fest að það sé í lagi.

  • Vera með rétt hleðslu­tæki.

  • Ekki nota hleðslu­tæki sem er laskað.

  • Hafa hleðslu­tækið sjálft á hörðu undir­lagi.

  • Hafa eldsmat ekki nærri hlaupa­hjóli í hleðslu.

Fréttasafn
Deila frétt