Fréttasafn

|

13.12.2023

Brunar á heim­ilum algeng­astir í desember

Það má með sanni segja aðventan og jóla­há­tíðin sé tími ljósa. Þeim fjölgar með hverjum deginum og mörgum þykja þau órjúf­an­legur partur mánað­ar­ins.

Desember er því miður líka sá mánuður þar sem brunar á heim­ilum eru hvað tíðastir. Algengast er að kvikni í út frá elda­mennsku og lifandi kertum. Við fögnum ledkertum og -seríum og minnum á að eldvarnir eru ótrú­lega mikil­vægar á þessum tíma.

  • Eru reyk­skynj­arar í öllum rýmum og búið að yfir­fara þá?

  • Er yfir­farið slökkvi­tæki á sýni­legum stað við flótta­leið?

  • Er eldvarna­teppi á áber­andi stað í eldhús­inu?

  • Eru lifandi kerti í traustum stjaka og á öruggum stað?

  • Er passað upp á hátta­tíma kert­anna?

  • Er þess gætt að yfir­gefa ekki eldhúsið meðan eldað er?

Fréttasafn
Deila frétt