Fréttasafn

|

09.08.2023

Birgir Örn mun leiða mótun áhættu­stýr­ingar í sameinuðu félagi VÍS og Fossa

Birgir Örn Arnarson hefur verið ráðinn til að stýra áhættu­stýr­ingu VÍS og leiða mótun áhættu­stýr­ingar í hinu sameinaða félagi VÍS og Fossa.

Sameinað félag verður öflugt fyrir­tæki á fjár­mála­markaði með víðtækar starfs­heim­ildir til fjár­mála­þjón­ustu og breiðan viðskipta­manna­grunn. Með því að sameina öfluga innviði félag­anna; eigin­fjár­stöðu VÍS og sterka teng­ingu Fossa við fjár­mála­mark­aði, fjár­festa sem og fyrir­tækja, verður til félag sem skilar auknu virði til hlut­hafa. Fyrst um sinn verður VÍS móður­félag Fossa en stefnt er að því að trygg­ing­a­rekstur, fjár­fest­ing­ar­banki og eign­a­stýring verði saman undir einu móður­fé­lagi.

Hjá VÍS mun Birgir bera ábyrgð á samhæfðri áhættu­stýr­ingu sem er grunn­urinn af ákvarð­ana­töku í fjár­fest­ingum og rekstri félags­ins. Samhliða ráðn­ingu Birgis verður gerð sú skipu­lags­breyting hjá félag­inu, að starf trygg­inga­stærð­fræð­ings tilheyrir nú sviði áhættu­stýr­ingar.

Birgir hefur víðtæka og mikla reynslu á sviði áhættu­stýr­ingar. Hann hefur meðal annars gegnt stöðu fram­kvæmda­stjóra áhættu­stýr­ingar (e. Chief Risk Officer) í PayPal Europe og yfir­manns lausa­fjár­grein­ingar í PayPal samstæð­unni. Birgir starfaði einnig sem yfir­maður mark­aðs­áhættu­grein­ingar (e. Head of Market Risk Analytics) á fjár­fest­inga­sviði alþjóð­lega trygg­inga­fé­lagsins Zurich.

Birgir er með doktors­próf í kenni­legri og hagnýtri aflfræði frá háskól­anum í Banda­ríkj­unum. Hann er jafn­framt með próf í verð­bréfa­við­skiptum. Hann hefur störf 15. ágúst.

Birgir Örn Arnar­son, nýr áhættu­stjóri VÍS:

„Ég hlakka til að taka þátt í spenn­andi vegferð félagsins en samein­ingin við Fossa og stofnun SIV eign­a­stýr­ingar fela í sér fjöl­breytt tæki­færi. Ég hlakka til að leggja mitt af mörkum og taka þátt í því að móta samstæðuna til fram­tíð­ar.“

Guðný Helga Herberts­dóttir, forstjóri VÍS:

„Það er mikill liðs­styrkur í Birgi sem reynslu­mikill stjórn­andi á sviði áhættu­stýr­ingar. Reynsla hans og menntun eiga eftir að leika mikil­vægt hlut­verk hjá VÍS á komandi miss­erum, ekki síst í þróun og mótun áhættu­stýr­ingar hjá hinu sameinaða félagi VÍS og Fossa. Ég fagna komu Birgis til okkar í VÍS og hlakka virki­lega til samstarfs­ins.“

Fréttasafn
Deila frétt