
Náðu í VÍS appið!
Vildarkerfi VÍS
Viðskiptavinir VÍS sem eru með heimilistryggingu og virkt kort hjá Íslandsbanka fara beint í demantsvildarþrep í Vildarkerfi VÍS og að lágmarki í vildarskrefið Fjall í Vildarþjónustu Íslandsbanka.
Þú finnur vildarkerfið okkar í VÍS appinu en þar getur þú einnig virkjað afslætti hjá samstarfsaðilum okkar og pantað gjafir í appinu.
Hvernig virkar vildarkerfið?

Vildarkjör af tryggingum
Vildarkjörin fara stigvaxandi með hverju vildarþrepi. Kopar er lægsta vildarþrepið og veitir engin vildarkjör. Brons veitir 5% vildarkjör, silfur veitir 10% vildarkjör, gull veitir 15% vildarkjör og demantur veitir 20% vildarkjör.
Fríðindi hjá samstarfsaðilum
Í VÍS appinu má finna afslætti hjá samstarsaðilum okkar, bæði af vörum og þjónustu. Fríðindin geta verið mismunandi eftir vildarþrepi.
Viðskipti þín skipta okkur máli
Vildarkerfið gerir ráð fyrir því að tryggir viðskiptavinir lendi annað slagið í tjóni. Því gerum við ekki kröfu um tjónleysi til að halda óbreyttum vildarkjörum.
Vildarþjónusta Íslandsbanka og demants vildarkjör VÍS
Viðskiptavinir VÍS sem eru með heimilistryggingu með fjölskyldu- og frítímaslysatryggingu innifaldri og virkt kort hjá Íslandsbanka fá 25 stig í Vildarþjónustu Íslandsbanka og demants vildarkjör af tryggingum hjá VÍS.
Appið
Notkunarskilmálar
VÍS appið er smáforrit sem veitir viðskiptavinum VÍS yfirsýn yfir þær tryggingar sem þeir eru með, gerir þeim mögulegt að tilkynna tjón með einföldum hætti og hafa yfirsýn yfir stöðu þeirra tjóna sem þegar hafa verið tilkynnt. Í appinu eru upplýsingar um kjör og fríðindi í vildarkerfi VÍS. Innskráning í smáforritið fer fram með rafrænum skilríkjum í farsíma.
Notkunarskilmálar
