Upplýs­ingar vegna fjar­sölu á líf- og sjúk­dóma­trygg­ingum

Samkvæmt lögum um fjar­sölu á fjár­mála­samn­ingum nr. 33/2005 er Líftrygg­inga­fé­lagi Íslands hf. skylt að veita eftir­far­andi upplýs­ingar þegar sala á líf- og sjúk­dóma­trygg­ingu fer alfarið fram í gegnum síma.

  • Sölu­aðili er Líftrygg­inga­félag Íslands hf. („Líf­ís“), kt. 570990-1449, sem hefur aðsetur að Ármúla 3, 108 Reykja­vík.

  • Lífís er skráð í hluta­fé­laga­skrá og vátrygg­inga­fé­laga­skrá Fjár­mála­eft­ir­litsins sem hefur eftirlit með starf­semi félags­ins.

  • Lífís er líftrygg­inga­félag sem selur líf- og heilsu­trygg­ingar.

  • Athygli skal vakin á því að rangar upplýs­ingar við töku trygg­ingar geta leitt til brott­falls bóta­réttar.

  • Líf- og sjúk­dóma­trygg­ingin endur­nýjast árlega þar til henni er sagt upp. Viðskipta­vinur getur þó sagt upp trygg­ingu sinni hvenær sem er á trygg­inga­tíma­bil­inu.

  • Öll trygg­ing­ar­vernd fellur niður frá uppsagn­ar­degi og fær viðskipta­vinur þá endur­greiðslu fyrir þann tíma sem greitt var fyrir en trygging var ekki í gildi.

  • Íslensk lög gilda um trygg­ing­ar­samn­inginn og varn­ar­þing er í Reykja­vík.

Sölu­þóknun vegna síma­sölu á líf- og sjúk­dóma­trygg­ingum

VÍS kann að greiða starfs­fólki sínu þóknun vegna sölu trygg­inga til viðskipta­vina. Þóknun er ákvörðuð sem föst krónu­tala af hverri seldri trygg­ingu.

Þegar milli­liður sér um sölu trygg­inga kann VÍS að greiða þóknun af sölu trygg­inga. Umboðs­laun eru greidd sem hlut­fall af verði trygg­inga nema þegar um líf- og sjúk­dóma­trygg­ingar er að ræða en þá er þóknun greidd sem hlut­fall af trygg­inga­fjár­hæð.