Stjórn VÍS
Sveinn Friðrik Sveinsson
Varamaður
Fæðingarár: 1974
Menntun: M.Fin. meistarapróf í fjármálum frá hagfræðideild Háskóla Íslands. B.Sc. próf í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands, löggilding í verðbréfamiðlun frá HR.
Aðalstarf: Fjármálastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS)
Starfsreynsla: Fjármálastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi frá 2017, fjármálastjóri Bílanausts 2014-2017, forstöðumaður markaðsviðskipta hjá Virðingu 2011-2014, verðbréfamiðlun hjá Saga fjárfestingabanka 2010-2011, forstöðumaður fjárstýringar hjá Straumi fjárfestingabanka 2006-2009 og forstöðumaður netviðskipta Íslandsbanka 2000-2006.
Stjórnarseta: Engin
Hlutafjáreign í VÍS og óhæði: Sveinn á enga hluti í VÍS og telst óháður félaginu.
Engin hagsmunatengsl eru við samkeppnisaðila VÍS.