Framúrsk­ar­andi þjón­usta hjá samstæðu Skaga

Í samstæðu Skaga eru þrjúunderlinesjálfstæð dótturfélög sem öll leggja áherslu á góða þjónustu og traust langtímasamband við viðskiptavini.

Við bjóðum viðskipta­vinum í fyrir­tækja­þjón­ustu VÍS upp á góð kjör innan samstæð­unnar á sviði trygg­inga, fjár­fest­inga­banka­starf­semi og eign­a­stýr­ingar.

Hafðu samband með því að senda tölvu­póst á fyrir­ta­eki@vis.is og við tengjum þig við rétta aðila sem taka málin áfram með þér.

VÍS

Eigendur og lykil­stjórn­endur fyrir­tækja fá sérstök vild­ar­kjör í sínar persónu­legu trygg­ingar.

  • Viðeig­andi vernd fyrir heim­ili, innbú og ökutæki.

  • Viðbót­ar­trygging fyrir verð­mætar eignir.

  • Sjúk­dóma­trygg­ing.

  • Þinn viðskipta­stjóri.

  • Aðgangur að Bíla­hjálp VÍS allan sólar­hring­inn.

  • Góð og hröð tjóna­þjón­usta.

Fossar

Fossar veita viðskipta­vinum sínum sérsniðna og persónu­lega þjón­ustu og tengja íslenskt atvinnulíf við alþjóð­legt fjár­fest­ingaum­hverfi.

  • Eign­a­stýr­ing: Aðgangur að sjóðum fjöl­margra sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækja sem oft standa einungis stofnana­fjár­festum til boða.

  • Fyrir­tækja­ráð­gjöf: Aðstoðar fyrir­tæki og einstak­linga við samruna og yfir­tökur og ráðgjöf við skrán­ingu á hluta­bréfa­markað og söfnun nýs hluta­fés.

  • Lána­svið: Sérhæfð lán til fjöl­breyttra verk­efna á borð við fast­eigna­kaup, þróun bygg­inga­verk­efna, verð­bréfa­fjár­mögnun og ýmissa annarra fjár­fest­inga.

Íslensk verð­bréf

Íslensk verð­bréf bjóða upp á fjöl­breytt úrval sjóða fyrir almenning og fagfjár­festa auk eign­a­stýr­ingar fyrir fagfjár­festa.

  • Skamm­tíma­sjóðir: Sérhæfðir sjóðir fyrir almenna fjár­festa með fjár­fest­ingar í innlánum, víxlum og skulda­bréfum. Hentar þeim sem vilja koma lausu fé í ávöxtun til skamms tíma með litlum sveiflum.

  • Lána­sjóðir: Fjár­mögnun til skemmri eða lengri tíma og hentar bæði þeim sem eru að leita að hagstæðri fjár­mögnun og einnig þeim sem vilja kanna hvort unnt sé að endur­fjármagna verk­efni á betri kjörum en stendur nú þegar til boða.

  • Opnir sjóðir: Fjöl­margir opnir fjár­fest­inga­sjóðir, bæði hluta­bréfa, skulda­bréfa og bland­aðir sem henta fjár­fest­inga- og áhættu­þörfum allra.