Sjálf­virk ákvarð­ana­taka

Það er forsenda þess að unnt sé að gera og fram­kvæm­a ­samn­ing um Ökuvís­i að ákvörðun um verðið þitt og útgáfu trygg­ing­ar­inn­ar ­sé ­tekin með sjálf­virkri ákvarð­ana­töku, m.a. með gerð persónusniðs.  

Sjálf­virk ákvarð­ana­taka um útgáfu trygg­ing­ar­innar byggir á:  

  1. Upplýs­ingum um van­skil eða á­greining vegn­a tjóna­mála hjá VÍS. 

  2.  Upp­lýs­ingar um að vátrygg­inga­taki hafi náð 17 ára aldri.

Sjálf­virk ákvarð­ana­taka um verð ­byggir á grunnið­gjaldi og breyti­legum þátt­um ­sem ­geta haft áhrif til lækk­unar á grunnið­gjald­i. Breyti­legir þættir iðgjaldsins ákvarðast af:  

1. Upp­lýs­ingum um akst­ur­s­ein­kunn þína í Ökuvísi. Akst­ur­s­ein­kunn ­byggir á upp­lýs­ingum um :  

  • Akst­urs­lengd í km  

  • Akst­urs­tími í mín  

  • Dagsetn­ing  

  • Tíma­setn­ing  

  • Hraðakst­ur  

  • Heml­un  

  • Síma­notkun við akst­ur  

  • Snöggar beygj­ur  

  • Hröð­un  

  • GPS hnit á korti  

2. Upp­lýs­ingum um fjölda ek­inna kíló­metra yfir mánað­ar­tíma­bil.  

Verð er reiknað út sjálf­virkt ­fyrir hvern mánuð innan vátrygg­inga­tíma­bils­ins.  

Þú getur ávallt óskað eftir frekari upplýs­ingum um nið­ur­stöðu sjálf­virkr­ar ákvörð­un­ar­töku, mótmælt henni eða fengið starfs­mann VÍS til að yfir­fara eða endur­meta hana með því að hafa samband í gegnum vis@vis.is eða í síma 560 5000. 

Einhverjar spurningar?

Hringdu í síma 560 5000