Persónu­vernd­ar­stefna Ökuvísis

Ökuvísir er trygg­inga­leið í ökutækja­trygg­ingum þar sem trygg­inga­takar hjá VÍS trygg­ingum hf., Ármúla 3, 108 Reykja­vík, kt. 670112-0470, sími 560 5000 (hér eftir „VÍS“) fá aðgang að sérsniðnu smáfor­riti (hér eftir „smá­for­rit­ið“) og mæli­tæki (hér eftir „mæli­tæk­ið“) , fá hvatn­ingu til að keyra vel, sem veitir trygg­inga­taka tæki­færi til að hafa með því áhrif á þau iðgjöld sem greidd eru fyrir lögboðna ökutækja­trygg­ingu og kaskó ökutækja­trygg­ingu (hér eftir „trygg­ingin“ en trygg­inga­leiðin er hér eftir nefnd „Öku­vís­ir“). VÍS er ábyrgð­ar­aðili við vinnslu persónu­upp­lýs­inga, sem verða til við notkun smáfor­rits­ins.

Í Ökuvísi færð þú aðgang að sérsniðnu smáfor­riti og mæli­tæki, hvatn­ingu til að keyra vel og hefur með því áhrif á verðið sem þú greiðir fyrir lögboðna ökutækja­trygg­ingu og kaskó ökutækja­trygg­ingu. Smáfor­ritið safnar upplýs­ingum um akst­urslag þitt og gefur einkunn út frá því hversu öruggur ökumaður þú ert. Með Ökuvísi ætlar VÍS í samvinnu við viðskipta­vini sína að bæta umferð­ar­menn­ingu og fækka slysum í umferð­inni.

Þér stendur til boða að prófa smáfor­ritið í 14 daga áður en þú tekur ákvörðun um hvort þú kaupir trygg­ingu í gegnum Ökuvísi. Eftir að þú hefur sett smáfor­ritið upp í snjall­tækið þitt hefjast mælingar sjálf­virkt við upphaf hverrar ferðar.

Ef þú ákveður að kaupa trygg­inguna að loknu prufu­tíma­bili færðu Ökuvísis mæli­tækið, sem þú festir í gluggann á ökutæk­inu, sent. Mæli­tækið er kubbur og saman mæla hann og smáfor­ritið akst­urslag þitt og ekna km.

Þú getur kynnt þér lyk­il­hugtök persónu­verndar í persónu­vernd­ar­stefnu VÍS á heima­síðu félags­ins.  

Uppfært 01.07.2024.

Persónuverndarfulltrúi VÍS

personuvernd@vis.is