Neyð­ar­að­stoð vegna ofbeldis í nánu sambandi

VÍS greiðir bætur til kaupa á nauð­synjum ef tryggður þarf að breyta aðstæðum sínum vegna ofbeldis í nánu sambandi.

Við bjóðum upp á sérstakt tilkynn­ing­ar­ferli fyrir þessa trygg­ingu. Við tryggjum fullan trúnað og gætum að því að upplýs­ingar sem gefnar eru í tilkynn­ing­ar­ferlinu komi hvergi fram í öðrum gögnum frá VÍS. Við leggjum áherslu á að afgreiða umsóknir um neyð­ar­að­stoð vegna ofbeldis eins fljótt og hægt er.

Ofbeldi í nánu sambandi er ofbeldi sem einstaklingur verður fyrir af hálfu einhvers sem er honum nákominn, skyldur eða tengdur eins og maki, barn, foreldri, systkini eða forráðamaður.

Tryggingin greiðir

  • Kostnað til kaupa á nauð­synjum ef tryggður þarf að breyta aðstæðum sínum vegna ofbeldis í nánu sambandi.

  • Hámarks­bætur eru kr. 200.000 á mánuði.

  • Bætur greiðast aldrei lengur en í 3 mánuði á hverju trygg­ing­ar­tíma­bili.

Nánari upplýsingar

  • Neyð­ar­að­stoð vegna ofbeldis í nánu sambandi er vernd í heim­il­is­trygg­ingu.

  • Skil­yrði greiðslu bóta er að fyrir liggi stað­festing fagaðila þess efnis að tryggður sé að breyta aðstæðum sínum vegna ofbeldis í nánu sambandi.

  • Þegar við höfum móttekið tilkynn­inguna höfum við samband við tilgreindan fagaðila og verðum svo í sambandi við umsækj­anda með fram­haldið.