Skagi, móðurfélag VÍS
Skagi er öflugt fyrirtæki á fjármálamarkaði sem stefnir á arðbæran vöxt á sviði trygginga, fjárfestingarbankastarfsemi og eignastýringar.
Samstæðan býr að langri og farsælli sögu í tryggingarekstri, framsækni í fjármálaþjónustu og langtímaárangri í fjárfestingum. Enn fremur er samstæðan í fararbroddi þegar kemur að tengingu íslensks atvinnulífs við alþjóðlegt fjárfestingarumhverfi.
Í samstæðu Skaga eru þrjú sjálfstæð dótturfélög; VÍS tryggingar, Fossar fjárfestingarbanki og Íslensk verðbréf.
VÍS
VÍS er eitt stærsta tryggingafélag landsins og á djúpar rætur í íslensku samfélagi. Félagið var formlega stofnað þegar Samvinnutryggingar og Brunabótafélags Íslands sameinuðust árið 1989 — en Brunabótafélagið rekur sögu sína allt aftur til ársins 1917.
VÍS býður víðtæka tryggingaþjónustu þar sem rík áhersla er lögð á ráðgjöf, skilvirkni, sveigjanleika og góða þjónustu. Meginstarfsemi VÍS er á sviði skaðatrygginga. Helstu tegundir eru eignatryggingar, sjó- og farmtryggingar, lögboðnar og frjálsar ökutækjatryggingar, ábyrgðartryggingar og slysatryggingar.

Fossar
Fossar veita viðskiptavinum sínum sérsniðna og persónulega þjónustu ásamt því að vera í fararbroddi þegar kemur að tengingu íslensks atvinnulífs við alþjóðlegt fjárfestingarumhverfi.
Um eignastýringu Fossa. Viðskiptastjóri sem opnar dyr að viðeigandi vörum og þjónustuþáttum. Aðgangur að sjóðum fjölmargra sjóðstýringarfyrirtækja sem oft standa einungis stofnanafjárfestum til boða.
Fyrirtækjaráðgjöf. Aðstoðar fyrirtæki og einstaklinga við samruna og yfirtökur og ráðgjöf við skráningu á hlutabréfamarkað og söfnun nýs hlutafés. Sjálfstæð ráðgjöf um alla þætti skuldafjármögnunar fyrirtækja og einstaklinga.
Lánasvið. Sérhæfð lán til fjölbreyttra verkefna á borð við fasteignakaup, þróun byggingaverkefna, verðbréfafjármögnun og ýmissa annarra fjárfestinga. Sviðið getur nýtt innviði bankans til að miðla verkefnum til annarra fjárfesta.

Íslensk verðbréf
Íslensk verðbréf er burðugt eignastýringarfélag með yfir 200 milljarða króna í stýringu eftir sameiningu ÍV sjóða og SIV eignastýringar. Íslensk verðbréf bjóða upp á fjölbreytt úrval sjóða fyrir almenning og fagfjárfesta auk eignastýringar fyrir fagfjárfesta. Hjá ÍV starfa sérfræðingar í hverjum eignaflokki fyrir sig með mikla reynslu af virkri stýringu eigna fyrir almenning, fyrirtæki og stofnanafjárfesta.
Skammtímasjóðir. Sérhæfðir sjóðir fyrir almenna fjárfesta með fjárfestingar í innlánum, víxlum og skuldabréfum. Hentar þeim sem vilja koma lausu fé í ávöxtun til skamms tíma með litlum sveiflum.
Lánasjóðir. Fjármögnun til skemmri eða lengri tíma og hentar bæði þeim sem eru að leita að hagstæðri fjármögnun og einnig þeim sem vilja kanna hvort unnt sé að endurfjármagna verkefni á betri kjörum en stendur nú þegar til boða.
Opnir sjóðir. Fjölmargir opnir fjárfestingasjóðir, bæði hlutabréfa, skuldabréfa og blandaðir sem henta fjárfestinga- og áhættuþörfum allra.
Viðskiptavinir VÍS fá sérkjör hjá Íslenskum verðbréfum. Engin þóknun er tekin við kaup og sölu af sjóðaviðskiptum að auki er afgreiðslugjald afnumið.

við fjárfesta, hluthafa, greiningaraðila og fjölmiðla
Allar flagganir skulu berast til regluvarðar
